Baldur Kolbeinsson, fangi á Litla Hrauni, er sagður hafa gengið berserksgang á sameiginlegum gangi vistmanna fangelsins í vikunni. Fréttablaðið greinir frá þessu. Baldur á að baki langan sakaferil en þetta er ekki fyrsta skiptið sem hann er óstýrlátur um jólin.
Samkvæmt Fréttablaðinu var föngum brugðið á fimmtudaginn þegar Baldur trylltist á Litla-Hrauni. Hann er sagður hafa brotið meðal annars sjónvarp, ísskáp og sófa og eldhúsáhöld. Fangaverðir þurftu að yfirbuga hann en Páll Winkel fangelsismálastjóri vildi ekki tjá sig um málið.
Baldur hefur ítrekað verið dæmdur fyrir ýmiss afbrot en mörg þeirra áttu sér stað á Litla-Hrauni. Árið 2017 kom til átaka á milli hans og annars fanga sem endaði með því að Baldur beit af efri vör fangans. Þar áður réðst hann gegn fanga og makaði saur í munn hans. Í fyrra barði hann svo 18 ára gamlan hælisleitanda frá Marokkó. Baldur hefur meira og minna setið í fangelsi frá sautján ára aldri.
DV greindi frá því fyrr á þessu ári að um síðustu jól gekk Baldur laus og framdi fjölmörg afbrot. Þá var Baldur sakaður um fimm þjófnaðarbrot en alvarlegast hlýtur að teljast þjófnaður hans á jólagjöfum 23. desember síðustu jól. Samkvæmt ákæru hnuplaði hann jólagjöfum og myndlykli af áfangaheimili Samhjálpar á Þorláksmessu í fyrra og voru áætluð verðmæti um 250 þúsund krónur.