fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Þyrla Landhelgisgæslunnar leitar úr lofti í Sölvadal

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. desember 2019 11:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var nú á tólfta tímanum send til leitar í Sölvadal. Þyrlan tók á loft frá Akureyrarflugvelli klukkan 11:16. Fjögurra manna áhöfn er um borð sem og björgunarsveitarmaður á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Í tilkynningu sem Landhelgisgæslan sendi frá sér kemur fram að áhöfn þyrlunnar kanni sömuleiðis aðstæður á svæðinu úr lofti ásamt því að taka þátt í leitinni. TF-LIF hefur verið til taks á Akureyri undanfarinn sólarhring.

Meðfylgjandi mynd var tekin af TF-LIF í flugskýli á Akureyrarflugvelli í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“