fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Veður farið að ganga aðeins niður á vestanverðu landinu – Spá brjáluðu veðri á austurhluta landsins í dag

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. desember 2019 07:20

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veður hefur gengið aðeins niður á vestanverðu landinu í nótt og mun verða skaplegra í dag en í gær en þó verður áfram vont veður. Mikil ófærð er víða og búast má við töluverðum truflunum á samgöngum víða um land. Nú þegar hefur verið tilkynnt um raskanir á innanlands- og millilandaflugi. Samkvæmt veðurspá mun óveðrið færast í aukana á austanverðu og suðaustanverðu landinu í dag og verður mjög slæmt þar. Undir Vatnajökli er búist við kolvitlausu veðri.

Fólki er því ráðlagt að kynna sér vel upplýsingar um veður og færð áður en lagt er af stað í dag. Aðgerðarstjórn mun koma saman á Austurlandi nú í morgunsárið og vera tilbúin í slaginn þegar óveðrið skellur á af fullum þunga.

Rafmagnslaust hefur verið sumsstaðar úti á landi og annarsstaðar eru díeselvélar keyrðar til að sjá fólki fyrir rafmagni.

Eitthvað eignatjón hefur orðið víða um land en ekki hafa borist neinar fréttir af slysum á fólki. Ekki hefur verið hægt að kanna allt tjónið sem tilkynnt hefur verið um vegna veðurofsans og bíður það betra veðurs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt