fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Eitt versta veður sem menn muna eftir í Vestmannaeyjum – Lögregla hugsi yfir lausum ruslatunnum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. desember 2019 13:14

Lögreglan í Vestmannaeyjum Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fárviðri þetta er eitt versta veður sem menn muna eftir í Vestmannaeyjum,“ segir í skeyti sem lögreglan í Vestmannaeyjum birti á Facebook í hádeginu.

Eins og komið hefur fram var vitlaust veður í Eyjum í gærkvöldi og í nótt en það byrjaði að hvessa hressilega þar um kvöldmatarleytið í gær. Klukkan 19 var stöðugur vindur kominn í 40 metra á sekúndu og yfir 50 metra á sekúndu í hviðum af norðvestri.

„Vindhraðinn var mikill fram á nótt og fór vind ekki að lægja fyrr en undir morgun. Þetta var mun meiri vindur en spáð hafði verið. Lögregla hafði varað við norðvestanáttinni, sem getur verið mjög skæð hér í Eyjum með sínum hvössu vindstrengjum sem skella á bænum. Íbúar höfðu verið beðnir að fergja allt lauslegt og lýst hafði verið yfir óvissuástandi vegna veðurspárinnar.“

Í skeyti lögreglu kemur fram að Björgunarfélag Vestmannaeyja og lögregla hafi sinnt á annað hundrað útköllum vegna veðursins. Mestu tjónin voru á fiskimjölsverksmiðjunni FES en þar fór klæðning af norðurhlið hússins. Miklar skemmdir urðu einnig á skemmu Vinnslustöðvarinnar en þar fléttist dúkklæðning af stálgrindarhúsi. Þá var Eiðinu lokað fyrir allri umferð í gærkvöldi enda lausamunir á ferðinni og aðstæður hættulegar.

Að sögn lögreglu urðu mestar mestar fokskemmdir á húsum á Illugagötu, þar fuku geymsluskúrar, þakklæðningar, girðingar og þakdúkar. Einnig urðu skemmdir á húsum á Flötum, Vestmannabraut, Brekastíg, Boðaslóð og fleiri götum. Rúður brotnuðu er hlutir fuku í þær. Járnplötur og þakdúkar losnuðu af húsþökum og fánastangir brotnuðu. Sendibíll lagðist á hliðina í óveðrinu og smábátar voru nálægt því að sökkva. Hátt var í og læti innan hafnar. Margt annað lauslegt fauk.

„Umhugsunarvert er hve víða illa er gengið frá ruslatunnum við hús en töluvert var um að þær væru á ferðinni í óveðrinu en mikil hætta er á að þær geti fokið í rúður og bíla og valdið tjóni. Lögreglan þakkar Björgunarfélagi Vestmannaeyja fyrir vel unnin störf, það sannast enn og aftur hve öflugt lið við eigum í BV. Um 30 björgunarfélagsmenn, ásamt öðrum aðstoðarmönnum unnu sleitulaust frá því fyrir kvöldmat og fram á morgun við að aðstoða fólk en kallað var eftir aðstoð kranabíls og smiðs til að byrgja glugga og fergja hluti sem voru að fjúka.“

Lögregla endar færslu sína á þessum orðum:

„Fárviðri þetta er eitt versta veður sem menn muna eftir í Vestmannaeyjum og er vindátt úr norðvestri okkur afar erfið. Engin slys urðu á fólki vegna veðursins sem er helst því að þakka að fólk hélt sig innandyra og þá voru félagar björgunarfélagsins vel búnir. Enn er bálhvasst í Eyjum og verður fram eftir degi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala