fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Möguleiki á rafmagnsleysi, lokun svæða og rýmingu húsnæðis fyrir vestan og norðan

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. desember 2019 16:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríksilögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að hækka viðbúnaðarstig af óvissustigi yfir á hættustig almannavarna vegna óveðurs í samráðu við Veðurstofu Íslands sem hefur gefið út rauða viðvörun fyrir svæðið.

Óveðrið hefur ekki náð hámarki á þessum svæðum en er farið að valda óþægindum.

Í tilkynningu um þetta á Facebook-síðu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir:

Almannavarnir áttu stöðufund með Veðurstofu Íslands og kom fram að veðrið væri ekki búið að ná hámarki en farið að hafa veruleg áhrif á samfélög þessara lögregluumdæma. Varðandi Vestfirði er aðallega um að ræða Strandir í takt við rauða viðvörun Veðurstofunnar. Búast má við áframhaldandi óveðri og ófærð auk þess sem er stórstreymt er þessa daganna. Við þessar aðstæður hefur myndast ísing á raflínum með tilfallandi rafmagnsleysi.

Skilgreining á hættustigi almannavarna:
Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig (almannavarnir.is).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“