Óhætt er að segja að starfslokasamningur Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra hafi valdið miklum usla á meðal almennings. Haraldur lætur af störfum í byrjun næsta árs og verður á óskertum launum og starfskjörum sem hann hefur haft, til 30. júní 2021. Í kjölfar þess verður hann á biðlaunum til loka sama árs. Þetta kom fram í starfslokasamningi Haraldar. Fær Haraldur um fjörutíu milljónir í sinn hlut, eða 126 föld lágmarkslaun í landinu.
Að gefnu tilefni skoðum við fleiri starfslokasamninga sem hafa sett samfélagið á hliðina og létt fjárhirslur almennings heilmikið.
Sandur af seðlum
Seðlabanki Íslands greiddi Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits hjá bankanum, rúmlega 18 milljónir króna við starfslok hennar hjá bankanum árið 2016.
Heildarupphæð: 18.000.000 kr.
Það eru …
… 75.000 lítrar af bensíni
… 120 ísskápar
… 45.000 ísar með dýfu
Kirkjumálasjóður gefur
Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, nýtur góðs af sínum starfslokum. Oddi var sagt upp störfum í byrjun október og hlýtur hvorki meira né minna 20 milljónir frá Kirkjumálasjóði næstu 19 mánuði. Oddur hafði starfað hjá kirkjuráði í þrjú ár.
Heildarupphæð: 20.000.000 kr.
Það eru …
… 57.000 pokar af lakkrísreimum
… 1 sumarbústaður á Suðurlandi
… 1.200 flugferðir til Kaupmannahafnar, fram og til baka
Skyldi sáttur við bankann
Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, lét af störfum og hlaut rúmar 25 milljónir króna eftir starfslokin frá bankanum.
Heildarupphæð: 25.000.000 kr.
Það eru …
… tæplega 140.000 lítrar af mjólk
… tæplega 15.000 bíómiðar
… 9 nýjar Yaris-bifreiðar
37 milljónir í laun og hlunnindi
Auðun Freyr Ingvarsson, sem sagði af sér sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða í október í fyrra, í kjölfar 330 milljóna króna framúrkeyrslu vegna framkvæmda við Írabakka, fékk greiddar alls 36,990 milljónir í laun og hlunnindi fyrir árið 2018.
Heildarupphæð: 36.990.000 kr.
Það eru …
… rúmlega 13.000 pítsur á veitingastað
… tæplega 80.000 strætómiðar fyrir fullorðna
… rúmlega 1 raðhús í Þorlákshöfn
Sæll bankastjóri
Höskuldur H. Ólafsson, fyrrverandi bankastjóri Arion banka, fékk 150 milljónir króna við starfslok sín hjá bankanum, að því er fram kemur í reikningsskilum bankans fyrir annan ársfjórðung 2019.
Heildarupphæð: 150.000.000 kr.
Það eru …
… næstum því 500 föld lágmarkslaun
… nóg til að kaupa rúmlega 300.000 tilboð af pylsu og kók
… 20 Teslur Model 3