fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Bifreið valt út í móa – Missti af beygjunni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. desember 2019 09:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílvelta varð í Brekadal í Reykjanesbæ um helgina, en þar hafði ökumaður misst af beygju sem hann hugðist taka. Ekki vildi betur til en svo að bifreiðin hafnaði utan vegar og valt út í móa þegar ökumaðurinn ætlaði að hemla og snúa við. Ökumaður kenndi eymsla og ætlaði að leita til læknis en bifreiðin var óökufær eftir veltuna.

Í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum segir einnig að rúta hafi runnið út af Norðurljósavegi í hálku. Dráttarbifreið var fengin til að draga hana upp á veginn. Engir farþegar voru um borð.

Þá kærði lögreglan á Suðurnesjum nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 132 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Um var að ræða erlendan ferðamann.

Fáeinir voru svo teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“