fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Íslendingur sakaður um umfangsmikil svik – Gengur bæði undir nafninu Telma og Róbert: „Það er eitthvað skrítið við þetta“

Auður Ösp
Laugardaginn 9. nóvember 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að minnsta kosti þrír Íslendingar hafa lagt fram kæru til lögreglu á hendur íslenskri konu vegna vörusvika. Umrædd kona  auglýsir sjónvarpsbox og sjónvarpsáskriftarpakka til sölu á Facebook, einkum inni á hópum fyrir Íslendinga sem búsettir eru á Spáni og í Danmörku. Fjölmargir hafa keypt af henni þjónustuna undanfarnar vikur, með loforði um að sjónvarpsboxið verði sent til þeirra í pósti, en hafa síðan enga vöru fengið í hendurnar.

Umrædd kona er á Facebook skráð undir nafninu Telma Arnarsdóttir, til heimilis í Torrox Costa á Spáni. Engin Telma Arnarsdóttir er hins vegar skráð í Þjóðskrá Íslands.

Hafa viðskiptavinir lagt fram greiðslu fyrir vöruna með millifærslu inn á bankareikning á nafni Róberts Daða Arnarssonar.

Samkvæmt upplýsingum DV er Róbert Daði Arnarsson fæðingarnafn Telmu Arnarsdóttur, en Telma er um þessar mundir í kynleiðréttingarferli.

Næst ekki í Telmu Samkvæmt umræðum á Facebook svarar Telma ekki kvörtunum. Hún svaraði heldur ekki blaðamanni DV. Mynd: Skjáskot / Facebook Telma Arnarsdóttir.

„Það er eitthvað skrítið við þetta“

Í auglýsingum býður Telma upp á þrjá mismunandi pakka; lítinn, stóran og miðlungs, sem innihaldi aðgang að íslenskum og erlendum sjónvarpsstöðvum. Þann 20. október síðastliðinn ritaði Andrés Magnússon færslu inni á Facebook-hóp fyrir Íslendinga sem búsettir eru á Costa Blanca-svæðinu á Spáni og spurði hvort einhver úr hópnum hefði keypt sjónvarpspakka af Telmu Arnarsdóttur.

„Við erum búin að bíða í mánuð frá því við greiddum henni fyrir „stóra pakkann“ en ekkert bólar á honum og nú er hún hætt að svara okkur og gefur ekki upp símanúmer hjá sér.“

Hátt í hundrað manns hafa ritað athugasemd undir færslu Andrésar og fjölmargir lýsa þar svipaðri reynslu af viðskiptum sínum við Telmu. Í öllum tilfellum hefur fólk lagt fram greiðslu, oftast með millifærslu, en ekki fengið neitt box afhent. Hér fyrir neðan má lesa nokkrar athugasemdir.

 „Vinafólk mitt pantaði fyrir mánuði hjá henni og lögðu inn á hana 20.000 og eru búin að bíða. Hún segir alltaf að pósturinn sé svo seinn á Spáni. Þau eru búin að senda henni póst í langan tíma og hún svarar ekki.

„Frænka mín er búin að bíða eftir þessu boxi í pósti í 3 vikur og ekkert bólar á boxinu. Skrítið að pósturinn sé svona seinn, svo pantar maður vöru frá Kína og það tekur skemmri tíma. Það er eitthvað skrítið við þetta.“

 „Við lögðum inn á bróður hennar og höfum aldrei fengið neitt. Búin að bíða í 6 vikur.“

 „Alls ekki versla við Telmu Arnarsdóttur Hún stal af mér 20.000 kr. fyrir boxið“

 „Ég greiddi boxið og áskrift 12. september og ekkert fengið.“

Vill forða öðrum frá sömu mistökum

Í samtali við DV staðfestir Hólmfríður Ebenesardóttir, eiginkona Andrésar, að þau hjón hafi lagt fram tilkynningu um málið til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í svarpósti lögreglunnar kemur fram að þegar hafi tvær tilkynningar borist vegna málsins og sé það nú í skoðun.

Sigríður Þrastardóttir, sem búsett er í Kaupmannahöfn, hefur einnig lagt fram kæru á hendur Telmu. Í samtali við DV segist hún vilja forða öðrum frá því að lenda í sömu gildru, en hún segist hafa keypt sjónvarpsbox af Telmu og millifært á hana 20 þúsund krónur í byrjun október. Boxið kom aldrei til hennar.

Ekki náðist í Telmu við vinnslu fréttarinnar, en símanúmer sem hún gefur upp á Facebook reyndist vera ótengt.

Ekki einsdæmi

Í janúar á þessu ári greindi DV frá því að íslenskur maður væri að selja aðgang að bæði íslensku og erlendu sjónvarpsefni til Íslendinga sem búsettir eru erlendis. Segist hann sjálfur vera búsettur í landi sem hefur evru sem gjaldmiðil. Fram kom að skortur á aðgengi Íslendinga erlendis að íslensku sjónvarpsefni hefur verið vandamál lengi.

Fram kom að maðurinn sem um ræðir beindi viðskiptum sínum til Íslendinga í útlöndum; í Danmörku, á Spáni og hugsanlega fleirum og auglýsti þjónustuna inni á viðeigandi Facebook-hópum.

Eftir að DV komst á snoðir um málið og setti sig í samband við manninn var samstundis lokað á öll samskipti.

HLIÐAREFNI

10% svika á samfélagsmiðlum

Vefsíðan Scam Watch reynir að halda utan um tíðni og umfang svindls á netinu. Þar kemur til að mynda fram hvers eðlis og á hvaða vettvangi svindlin verða:

Í gegnum tölvupóst – 29,5%
Í gegnum síma – 25,1%
Á internetinu – 16,7%
Í gegnum smáskilaboð – 10,8%
Á samfélagsmiðlum – 10,4%
Í bréfpósti – 3,8%
Í smáforritum í síma – 2,5%
Í eigin persónu – 1%
Óljóst – 0,2%

Svona verndarðu þig fyrir svindli á netinu

* Aldrei greiða með millifærslu, hvorki hluta né alla upphæðina. Ávallt nota kredit- eða debetkort til að tryggja að hægt sé að bakfæra færsluna ef upp kemst um svik.
*Ef að varan eða þjónustan sem er í boði virðist vera of góð til að vera sönn þá er það líklegast þannig. Ekki kaupa ef þú ert í vafa.
*Spyrst fyrir hvort einhverjir hafi reynslu af þeim sem þú ert að versla við.
*Varastu að versla við einstaklinga á samfélagsmiðlum. Betra er að versla við viðurkennd fyrirtæki. Ef þú ert að versla við einstakling og hann býr í þínu nærumhverfi þá skaltu fá að hitta viðkomandi og skoða vörurnar sem um ræðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Í gær

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Í gær

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Í gær

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“