fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Skipstjórinn þurfti að gista fangageymslur – Sendir frá sér yfirlýsingu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. nóvember 2019 16:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arngrímur Brynjólfsson, skiptstjóri hjá Samherja, taldi sig ekki hafa látið skip sitt stunda veiðar á lokuðu svæði eins og Fiskistofa Namibíu sakar hann um. Segir hann ásökunina var mikil vonbrigði því hann hafi aldrei á 49 ára ferli sínum fyrr verið vændur um ólöglegar veiðar. Arngrímur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Í henni kemur fram að hann þurfti að gista fangageymslur í Namibíu í nótt. Hann vonast til að málið leysist farsællega innan tíðar en yfirlýsing hans er eftirffarandi

Yfirlýsing frá Arngrími Brynjólfssyni skipstjóra Heinaste

Skipið Heinaste kláraði löndun í fyrradag. Eftir að skipið hafði klárað löndun var ég boðaður til fundar við Fiskistofu Namibíu sem stýrir veiðum í landinu. Þar komu fram ásakanir þess efnis að skipið hefði farið inná á lokað svæði til veiða.

Ég vill taka fram að á mínum 49 ára ferli til sjós, þar af yfir 34 ár sem skipstjóri, hef ég aldrei verið sakaður um hafa brotið af mér í starfi á neinn hátt. Þessi veiðiferð átti að vera sú síðasta á ferlinum og eru það mér mikil vonbrigði að verða fyrir þessum ásökunum nú.

Mér vitandi hefur skipið ekki verið sakað um brot af þessu tagi áður og kemur ásökunin sjálfum mér á óvart enda er þess gætt af kostgæfni að veiða aldrei á þeim svæðum sem eru lokuð hverju sinni.

Allajafna þegar skip er sakað um að hafa veitt innan lokaðs svæðis í lögsögu Namibíu er skipstjóri leiddur fyrir dómara og sleppt samdægurs. Vonast ég til að það taki ekki langan tíma að leiða málið til lykta og eftir því sem ég kemst næst hefur öllum málum af þessu tagi lokið með sektargreiðslu teljist það sannað að skip hafi í raun stundað veiðar innan lokaðs svæðis.

Langt var liðið á daginn þegar samtalið við Fiskistofu fór fram. Það tókst því ekki að koma málinu fyrir dómara samdægurs og þurfti ég því að gista fangageymslur eina nótt. Í gærmorgun fór málið svo fyrir dómara, mér var sleppt og vonast ég til þess að málið leysist endanlega innan skamms.

Virðingarfyllst, Arngrímur Brynjólfsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“
Fréttir
Í gær

Saxenda bætti lífsgleði, lífgæði, liðleika og úthald en SÍ neituðu að halda áfram að niðurgreiða

Saxenda bætti lífsgleði, lífgæði, liðleika og úthald en SÍ neituðu að halda áfram að niðurgreiða
Fréttir
Í gær

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur
Fréttir
Í gær

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“
Fréttir
Í gær

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips