Íslenskur skipstjóri, Arngrímur Brynjólfsson, var handtekinn af lögreglunni í Namibíu fyrir ólöglegar veiðar í landhelgi Namibíu. Arngrímur var handtekinn ásamt öðrum skipstjóra, rússneskum manni að nafni Lurri Festison.
RÚV greindi fyrst frá málinu og vísar í fréttaflutning fjölmiðla í Namibíu. Í frétt RÚV kemur fram að Arngrímur hafi starfað um árabil hjá Samherja. Í frétt Namibian Broadcasting Corporation kemur fram að skipið sem Arngrímur sigldi hafi verið við veiðar á hrygningarsvæðum.
Var hann leiddur fyrir dómara sem úrskurðaði að Arngrímur skildi vera í haldi þar til trygging hefur verið greidd. Í frétt RÚV segir að upphæðin nemi 100 þúsund Namibíudollurum en auk þess þurfti hann að leggja vegabréf sitt inn.