fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sunna Dís óttaðist það versta þegar systir hennar svaraði ekki eftir deit með útlendingi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. nóvember 2019 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sunna Dís Jónasdóttir segir að þegar systir hennar svaraði ekki símanum í tvo sólarhringa eftir stefnumót með ókunnugum útlendum manni hafi hún óttast að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Svo reyndist ekki en þetta varð til þess að hún áttaði sig á því að hún væri hrædd við karlmenn.

Sunna Dís ræðir þetta í pistli sem birtist á Vísi. „Í síðustu viku hafði systir mín ákveðið að fara á Tinder stefnumót með manni sem hún hafði einungis talað við í rúma viku. Þetta stefnumót átti að endast eina sundferð en ílengdist í næstum tvo sólarhringa, fjölskyldunni og vinum til mikils ama. Þar sem okkar seinustu samskipti við hana voru mánudagskvöldið um átta leytið og heyrðist ekkert í henni þangað til á miðvikudagseftirmiðdegi,“ segir Sunna Dís.

Hún segist hafa óttast það versta. „Síminn batteríslaus, engin virkni á samfélagsmiðlum og engin ummerki um að hún hafi komið heim til sín, í herbergið sem hún leigir sér í Hlíðunum, Reykjavík. Öll þessi atriði samanlögð urðu að mikilli geðshræringu, skiljanlega þar sem hún var að fara hitta ókunnugan útlenskan mann, sem hún kvað búsettan hér til margra ára. Saklaust Tinder stefnumót, sem gekk það vel að það endist í nánast tvo sólarhringa,“ segir Sunna Dís.

Var hrædd að bera út

Líkt og fyrr segir þá fékk þetta atvik Sunnu til að velta fyrir sér öryggi kvenna. „Eftir að hafa náð sér niður að hún væri óhult og þetta hefði bara gengið svona vel og henni datt ekki í hug að allir í kringum hana væru að farast út áhyggjum að eitthvað miður hafi átt sér stað þá fór ég að velta fyrir mér hversu fljótt hugsunin fór í að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað þegar kona hittir mann,“ segir Sunna.

Hún segist hafa áttað sig snemma á því að karlar og konur væru mishrædd eftir aðstæðum. „Þegar ég var unglingur þá bar ég út Morgunblaðið á hverjum morgni í nánast fimm ár. Bekkjarfélagi minn bar einnig út Morgunblaðið í næsta hverfi álíka lengi. Við áttum samræður á ákveðnum tímapunkti um hræðslu við að vera ein/nn á morgnana og allt það sem tengdist þeirri hræðslu. Það sem kom fljótt í ljós er að þetta var einungis mín hræðsla ekki hans. Hann óttaðist ekki að bera út og hann svo sannarlega kannaðist ekki við að vera sérstaklega hræddur við karlmenn né að bera út á laugardagsmorgnum líkt og ég. Ég held að á þessum tímapunkti hafi ég fyrst áttað mig á að við búum ekki í sama veruleika. Ég er kona sem óttast karla, og af ástæðu. Það sem ógnar mest lífi kvenna eru karlmenn, það sem ógnar lífi flestra karla eru hjartasjúkdómar,“ segir Sunna.

Sorgleg staðreynd

Sunna segist ekki fara af því að hún óttist karla. „Það verður ekki farið nánar ofan í af hverju þetta er svona því ég hreinlega skil það ekki og veit það ekki. Ég vildi að þetta væri ekki raunveruleikinn en ég vil hins vegar hlusta á mörkin mín og viðurkenna fyrir öllum mínum frumum að ég er kona sem hræðist karlmenn. Ég hræðist þá til dæmis á þann hátt að þegar ég hef ekki heyrt í systur minni í nánast tvo sólarhringa að hún sé ekki óhult þar sem hún sást síðast með manni sem hún kynntist á Tinder,“ segir Sunna.

Að lokum segir hún að þetta sé sorgleg staðreynd. „Ég hræðist karlmenn þegar ég geng ein heima í myrkri og mæti þeim. Ég hræðist þá þegar strákurinn minn sem er 11 ára er ekki kominn heim og hann lagði af stað fyrir 30 mín frá skólanum eða íþróttaheimilinu, ég hræðist þá á svo milljón mismunandi vegu, oftar en ekki á mjög ómeðvitaðan máta sem er sorgleg staðreynd. Þessi ótti hefur ekki orðið til í tómarúmi heldur vegna blákaldra staðreynda um hvernig heimi við höfum lifað í og höldum áfram að lifa í.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni