fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Pervertinn á Þingeyri dæmdur – Fórnarlömbin fá ekki það sem þau kröfðust

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 12:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Maðurinn var dæmdur sekur um kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum.

Maðurinn stundaði það að taka myndefni af börnum í búningsklefum, bæði stelpum og strákum. Hann tók myndir af alls átta fórnarlömbum á símann sinn en hann teygði hann yfir skilrúm milli búningsklefa karla og kvenna.

Vísir greindi frá því fyrr á þessu ári að maðurinn hafi tekið myndbönd af stelpum sem fæddar voru á árunum 2003 til 2008 en einnig tók hann myndband af stráki sem var í sundi með móður sinni. Strákurinn var fæddur árið 2013.

Fórnarlömb mannsins kröfðust samtals 10,5 milljóna í bætur en maðurinn var einungis dæmdur til að greiða samanlagt tvær milljónir í bætur. Auk þess þarf hann að greiða um 1,5 milljón í sakarkostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu