DV fékk senda ábendingu varðandi málið frá heimildarmanni en hann segir plakötin vera á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa. „Hundruð slíkar stofnanir úti í heimi hafa verið ásakaðar um að vera málgögn kínverskra stjórnvalda,“ segir heimildarmaðurinn og vísar í frétt frá RÚV um þessar stofnanir.
„Þessi sýning kappkostast að hylla kínversk yfirvöld, til dæmis fjallar eitt plakatið um góða vegferð Kína eftir að hafa kjarnorkuvæðst. Annað plakat er með stórri mynd af Xi Jinping, forseta Kína, ásamt lofsamlegum texta. Xi Jinping er nú hálfgerður einráður eftir að hafa numið ákvæði úr kínversku stjórnarskránni sem kváðu á um hámarksfjölda kjörtímabila í forsetaembætti.“
Hann segir að honum sé misboðið að Háskóli Íslands skuli leyfa þessa sýningu á plakötunum enda sé hún „augljóslega ætluð til að fegra ímynd ríkis sem hefur enn og aftur gerst brotlegt um stórfelld mannréttindabrot“. Hann nefnir morðin á Uighur-múslimum í norðvestur-hluta Kína sem dæmi og fleiri mál eins og Tiananmen-mótmælin, mótmælaölduna í Hong Kong, ritskoðun stjórnvalda og Falun Gong-málið.
„Hvers vegna leyfir Háskóli Íslands sýningu á hreinum og beinum áróðri frá alræðisríki, sem hefur enn og aftur orðið uppvíst að stórfelldum mannréttindabrotum?“
Ljóst er að málið hefur vakið mikla athygli en á vefsvæði Íslendinga á Reddit eru heitar umræður um málið.
„Væri til í að sjá meira um að það sé áróður fyrir innlimuninni í Háskólanum. Íslendingar elska samt að græða á viðskiptum við Kína, ólíklegt að við fórnum því fyrir einhver mannréttindi ef ég þekki okkur rétt.“
„Ég er nokkuð viss um að stjórnvöld í Kína eru þau ógeðslegustu sem fá að taka þátt í alþjóðasamfélaginu.“
„Mér finnst þetta ekki í lagi og ég var búinn að senda inn kvörtun. Feginn að ég var ekki sá eini sem þetta fór fyrir brjóstið á.“
„Var HÍ ekki að væla yfir áróðri nasista um daginn? Birta síðan sjálfir nýlenduáróður frá nútíma fasistaríki. Þvílík hræsni.“
Uppfært:
Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs HÍ, hefur staðfest við mbl.is að veggspjöldin verði fjarlægð vegna kvartana frá nemendum.