fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Búist við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa – Appelsínugul viðvörun og röskun á flugi

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 12:17

Skáskot af vedur.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Varasamt að vera á ferðinni og samgöngutruflanir líklegar. Auknar líkur á foktjóni“ Þetta segir á vef Veðurstofu Íslands fyrir kvöldið á  Faxaflóa. Stormurinn er áætlaður milli 20:30 og 23:00 í kvöld. Vindhraði gæti náð 20-28 metrum á sekúndu og vindhviður allt að 40 metrum á sekúndu við fjöll

Viðvörun fyrir svæðið hefur verið breytt úr gulri yfir í appelsínugula.

Eins hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun fyrir Suðurland frá 20-22:30 í kvöld.

Eitthvað af innanlandsflugi hefur verið fellt niður.

Gul viðvörun er í gildi fyrir næstum allt landið. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð varasömum sviptivindum í efri byggðum og við háar byggingar og er talið varasamt að vera á ferðinni á Suðurlandi.

Íbúum á Suðausturlandi er bent á að gæta að niðurföllum vegna mikillar rigningar. Eins verða auknar líkur á skriðuföllum.

Ekkert ferðaveður verður á miðhálendinu til 01:00 í nótt.

Fólki er bent á að huga að hlutum sem geta fokið og valdið tjóni sem og að varast ferðalög á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi.

 

Uppfært 15:30 

Upphaflega stóð orðið „vondviðri“ í fyrirsögn. Það orð er víst ekki til og biðst blaðamaður velvirðingar á því. Orðinu eða óorðinu hefur nú verið skipt út fyrir orðið „stormur“ sem blaðamaður hefur verið fullvissaður um að sé vissulega til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“