Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning þess efnis að veski, sem innihéldi poka með meintu kókaíni, hefði fundist utan dyra í Keflavík. Í því var einnig pakkning af kamagrageli – samheitalyfi stinningarlyfsins Viagra.
Að sögn lögreglu voru skilríki í veskinu en þegar lögregla ræddi við eiganda þess þvertók hann fyrir að hafa haft vitneskju um fíkniefnin eða að neyta fíkniefna yfir höfuð. Hann samþykkti að undurgangast synatökur á lögreglustöð og var niðurstaða þeirra jákvæð á neyslu kókaíns.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að lögregla hafi einnig fundið 20 grömm af kannabisefnum hjá húsráðanda einum við hefðbundið eftirlit með fíkniefnum í umdæminu.