fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Lára áhyggjufull: Líkir rafrettum við asbest – Erum við að fara í sama ferli?

Ritstjórn DV
Mánudaginn 7. október 2019 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Asbest var lengi álitið afbragðs einangrunar- og byggingarefni. Um 1935 var orðið ljóst að þeim sem vinna við asbest er hættara við lungnasjúkdómum sem koma fram á 10-15 árum. Þrátt fyrir það liðu sjötíu ár þar til allsherjarbann við notkun asbests gekk í gildi árið 2005.“

Þetta segir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og pistlahöfundur Fréttablaðsins, í bakþönkum blaðsins í dag.

Þar skrifar Lára um rafsígarettur og veltir fyrir sér hvort við séum á leið í sama farveg með þær og asbestið sem tók áratugi að banna þó vitneskja um skaðsemi þess hafi legið fyrir.

„Lungun eru í lykilhlutverki. Á hverjum sólarhring andar þú meira en 4.000 lítrum af andrúmslofti. Ummál lungna er á við tennisvöll sem sýnir hversu gríðarlega mikilvægt er fyrir líkamann að fá nægt súrefni. Ef lungnablöðrurnar eyðileggjast þá kafnar viðkomandi,“ segir Lára.

Að undanförnu hefur talsvert verið fjallað um óhugnanlega lungnasjúkdóma sem komið hafa upp hjá þeim sem nota rafsígarettur. Hátt í tuttugu manns hafa látist í Bandaríkjunum á síðustu vikum og fjölmargir hafa veikst. Allir áttu það sameiginlegt að hafa reykt rafsígarettur.

„Nú er kominn fram nýr lungnasjúkdómur með þekkta orsök. Rafsígarettur hafa valdið skaða á lungnablöðrum ófárra unglinga. Það vekur óhug þar sem um 15% barna í tíunda bekk reykja rafsígarettur samkvæmt nýrri skýrslu. Þetta hlutfall gæti verið hærra því einhverjir þora ekki að segja rétt frá.

Unglingar eru á viðkvæmu þroskaskeiði. Á sama tíma og þeir eru að undirbúa sjálfstæði sitt er þeim hættara við að taka ákvarðanir út frá hvatvísi því framheili þeirra tekur síðast út þroska. Taugafrumur heilans eru ekki fullvíraðar sem gerir þeim auk þess hættara við að ánetjast fíkniefnum.“

Lára segir að nú séu yfirvöld farin að viðra þær hugmyndir að skoða reglur um sölu á rafsígarettum.

„Erum við að fara í annað asbestferli þar sem málið mun taka áratugi áður en almennilega er tekið á þessu? Í San Francisco er búið að banna sölu á rafsígarettum. Það má fara milliveg og selja einungis rafsígarettur í apótekum sem tól til að hætta sígarettureykingum, enda voru þær upphaflega ætlaðar til þess. Sveitarfélög geta tekið á þessum málum ef Alþingi hefur hvorki kjark né dug til að afstýra þessu lýðheilsuslysi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu