Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi þjóðkirkjuprestur, hefur sent kirkjuráði Þjóðkirkjunnar bréf sem ekki má opna fyrr en að honum látnum. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV. Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir að ósk Þóris verði virt. Þórir vill ekkert tjá sig um innihald bréfsins.
DV fjallað um mál Þóris árið 2018 og þar segir meðal annars:
„Árið 2015 var barnaníðingsmál innan Þjóðkirkjunnar gert upp á sáttafundi á Biskupsstofu þar sem þolandi og gerandi mættust. Gerandinn, séra Þórir Stephensen fyrrverandi Dómkirkjuprestur, gekkst við brotum sínum á fundinum en hefur síðan fengið að koma fram í kirkjulegum athöfnum, predikað og tekið í hendur á mektarmönnum, íslenskum og erlendum. Þrír biskupar hafa vitað um málið og kirkjan er í mikilli vörn vegna þeirra mistaka sem gerð hafa verið. DV fjallar nú um syndir kirkjunnar. Þetta mál og önnur sýna vel hvernig kirkjan hefur síendurtekið brugðist skyldu sinni gagnvart skjólstæðingum, sópað undir teppið, falið og neitað að horfast í augu vandamál sem upp koma. Þess í stað er gerendum hampað eins og mál Þóris Stephensen, sýnir glöggt. Alvarleg kynferðisbrot Þóris eru ekki aðalatriðið í umfjöllun DV þótt ekki verði hjá því komist að fjalla um þau brot sem hann viðurkenndi á umdeildum sáttafundi.
Þórir var nemi við guðfræðideild Háskóla Íslands þegar hann kom eins og úlfur í sauðargæru inn á heimili forstjóra eins í vesturbæ Reykjavíkur. Hann var reyndar fæddur og uppalinn í Reykjavík en fékk herbergi til að gista í eftir að stúdentsprófi lauk árið 1951 og stunda þar nám sitt. Unnur Guðjónsdóttir, ættingi þolanda, segir:
„Íbúð foreldra Þóris var svo lítil að umræddur forstjóri bauð honum herbergi í sinni íbúð í sömu götu, sem hann þáði. Hann var þá að byrja í guðfræðideildinni í Háskólanum.“
Annað herbergi á háalofti heimilisins var svefnherbergi tveggja dætra forstjórans, sem þá voru tíu og níu ára gamlar. Herbergið var ílangt og rúm þeirrar eldri var nær hurðinni en hinnar yngri við vegginn fjær. Þolandi hefur ekki treyst sér til að tjá sig við DV, en fólk náið honum hefur gert það. Maður náinn konunni segir:
„Hún sagði mér hvað gerðist á þessum tíma. Faðir hennar leyfði Þóri að búa hjá sér uppi á háalofti þar sem þær sváfu systurnar. Hann flutti upp á loft og var í herbergi sem var á sama gangi og herbergi systranna. Síðan fór hann að fara inn til hennar og taka hana, misnota hana. Hún var tíu ára og hann hefur verið tvítugur eða þar um kring. Hann virðist hafa gert þetta þegar systir hennar, sem er ári yngri, var sofnuð. Hún lýsti því þannig.“
Málið var aldrei rannsakað og ekki er nákvæmlega vitað hversu oft Þórir braut á stúlkunni.“