Hákon Örn Bergmann, einn þeirra sem er ákærður í Skáksambandsmálinu svokallaða, auglýsir til sölu á Facebook rándýra níu lítra flösku af Moet Brut Imperial. Slík flaska er ekki seld í Vínbúðinni en ljóst er að verðmæti hennar hleypur á tugum þúsunda, þar sem 750 millilítrar af sama vín kostar ríflega sex þúsund krónur.
„Óska eftir tilboði í Moet Brut Imperial 9 lítra. Flaskan kemur í flottum trékassa. Það má áætla að það séu uþb. 110 kampavínsglös í flöskunni. Hentugt fyrir stórafmæli, brúðkaup ofl.,“ skrifar Hákon Örn innan Facebook-hópsins Vínbúðin. Hákon var eigandi veitingastaðarins Hvíti Riddarinn sem var meðal stærstu veitingastaða í Mosfellsbæ.
Hákon er ákærður í Skáksambandsmálinu ásamt Sigurði Kristinssyni fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Sigurður er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutninginn á fimm kílóum af amfetamíni, sem ætlað hafi verið til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Hákon Örn er ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin með Sigurði og tekið að sér að taka á móti fíkniefnunum hér á landi.
Aðalmeðferð í málinu hófst nú eftir áramóti en samkvæmt dagskrá dómstóla verður framhald á henni þann 25. febrúar næstkomandi. Við aðalmeðferð á dögunum sagði Hákon að hann hafi þekkt Sigurð lengi og sumarið 2017 hafi Sigurður lent í lausafjárvanda og fengið lánað hjá sér pening. Sigurður hafi flutt út og Hákon hafi vonast eftir pening frá honum vegna þess að hann sjálfur hafi vantað pening til að fjármagna kvikmyndina Fullir vasar. Hákon neitaði fyrir dómi að hafa vitað að sendingin innihéldi fíkniefni, hann hafi talið að í henni hafi verið peningar. Síðan hafi runnið á hann tvær grímur og sagði hann að á einhverjum tímapunkti hafi hann haldið að um eitt kíló af fæðubótarefnum væri að ræða.