Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bifreið í morgun í Hafnarfirði þar sem bifreiðin var ótryggð. Ökumaður bifreiðirnar var með barn í bílnum en hann var einnig án ökuréttinda. Klippt var því á númer bifreiðarinnar.
Mikið var að gera hjá lögreglunni í morgun og var meðal annars tilkynnt um karlmann í annarlegu ástandi þar sem hann lét mjög ófriðlega inni á heilbrigðisstofnun. Karlmaðurinn hafði neitað að yfirgefa húsnæðið eftir að hafa fengið þá þjónustu sem hægt var að veita honum. Lögreglan fór á vettvang og ræddi við manninn sem róaðist nokkuð og fékk hann að halda sína leið enda voru ekki frekari kröfur á hendur honum.
Einnig var karlmaður handtekinn vegna gruns um gripdeild í áfengisverslun. Var hann vistaður í fangaklefa vegna málsins enda var hann í annarlegu ástandi.