Leit björgunarsveita í Skerjafirði hefur verið hætt, síðustu tvær klukkustundir rúmar hefur verið leitað þar af neyðarblysi sem tveir vegfarendur tilkynntu um.
Ekki kom neitt út úr leitinni og því ekki ólíklegt að að um flugeld hafi verið ræða. Viðbrögð tilkynnanda voru hárrétt, alltaf á að tilkynna ef sést það sem menn telja vera neyðarblys.