fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Ólafur Hand sakfelldur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður sinni – Háttsettur hjá Eimskip – Lýsti umgengnistálmunum í sjónvarpi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. janúar 2019 11:00

Ólafur Hand.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri hjá Eimskip, hefur verið fundinn sekur um alvarlegt ofbeldi gegn barnsmóður sinni, sem og brot gegn barnaverndarlögum þar sem dóttir þeirra varð vitni að ofbeldinu. Dómur þessa efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 19. desember síðastliðinn. Atvikið átti sér stað á heimili Ólafs sumarið 2016 er móðirin hugðist sækja dótturina og fara með hana í sumarleyfisdvöl til Indónesíu. Barnsmóðirin, sem fer ein með forsjá barnsins, greindi frá því fyrir dómi að af svörum Ólafs fyrir atvikið teldi hún mega ráða að hann ætlaði ekki að skila barninu í tíma fyrir ferðina þrátt fyrir úrskurð sýslumanns þar um. Vegna þessa og þar sem hún óttaðist viðbrögð hans hafi hún kallað eftir lögreglufylgd.

Barnsmóðirin kom á vettvang með lögreglumanni og sambýlismanni sínum. Hún fór inn í hús Ólafs í óleyfi þegar Ólafur opnaði fyrir henni. Sagði barnsmóðirin í vitnaskýrslu að hún hefði gert það þegar hún heyrði barnið kalla til sín grátandi álengdar. Ólafur var ákærður fyrir að hafa tekið barnsmóðurina hálstaki og þrengt ítrekað að hálsi hennar, hrint henni þannig að hún féll í gólfið, rifið í hár hennar og ýtt henni utan í vegg. Þá er eiginkona Ólafs ákærð fyrir að hafa hlaupið ítrekað á konuna og klórað hana. Hin ákærðu sökuðu barnsmóðurina um húsbrot og ofbeldi á vettvangi. Lögreglan féll hins vegar frá saksókn á hendur barnsmóðurinni og var sú ákvörðun síðar staðfest af ríkissaksóknara.

Ólafur neitaði að hafa tekið barnsmóðurina hálstaki, hrint henni í gólfið eða ýtt henni utan í vegg. Hann segist hins vegar hafa gripið um hana ofarlega og lagt hana niður í gólfið.

Áverkar á barnsmóðurinni

Barnsmóðirin kvartaði undan verk í hálsi eftir atvikið, sársauka við að kyngja, hósta, blóðbragði í munni, sem og höfuðverk og verk í herðum og baki. Þá hafi blóð verið í þvagi hennar. Hún segist jafnframt hafa orðið fyrir fósturláti vegna árásarinnar. Staðfest er að hún missti fóstur um þetta leyti. Samkvæmt dómsniðurstöðu bera gögn hins vegar ekki með sér að fósturlátið megi rekja til árásarinnar. Gögn og myndir bráðamóttöku LSH vegna líkamsskoðunar leiða í ljós marga yfirborðsáverka á hálsi, tognun og ofreynslu á hálshrygg, yfirborðsáverka á bakvegg og brjóstkassa, og loks tognun og ofreynslu á brjósthrygg.

Ólafur sakfelldur en eiginkona hans sýknuð

Ólafur var fundinn sekur um líkamsárás á barnsmóður sína sem og um brot á barnaverndarlögum þar sem dómurinn taldi sannað að dóttir hans hefði orðið vitni að árásinni. Var hann fundinn sekur um að hafa tekið barnsmóður sína hálstaki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið – en sýknaður af því að hafa rifið í hár hennar og hrint henni utan í vegg. Er Ólafur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá er hann dæmdur til að greiða konunni 400.000 krónur í miskabætur og verjanda sínum um 1,5 milljónir króna.

Eiginkona Ólafs var sýknuð af ákæru um líkamsárás.

Dráttur á rannsókn kann að hafa forðað Ólafi frá fangelsisvist en fram kemur í dómsorði að rannsókn málsins hafi dregist svo lengi að óhjákvæmilegt sé að skilorðsbinda refsingu Ólafs.

Sakaði hana um umgengnistálmanir í viðtali við Stöð 2

Ólafur og konan eignuðust dóttur árið 2006 en þau áttu í fremur stuttu sambandi. Í febrúar árið 2017 kom Ólafur fram í löngu viðtali á Stöð 2 þar sem hann sagðist ekki hafa fengið að sjá dóttur sína í átta mánuði. Það er nákvæmlega sá tími sem liðinn var frá þeim atburðum sem lýst er í framangreindum dómi héraðsdóms. DV hefur undir höndum gögn sem sýna að það er samkvæmt ákvörðun yfirvalda sem Ólafur nýtur ekki reglulegrar umgengni við barnið. Byggir sú ákvörðun meðal annars á því að barnið treystir sér ekki til að hitta hann vegna ofbeldisins sem það var vitni að. Í þeim gögnum kemur einnig fram að Ólafur sagði sig frá ferli þar sem fagmenn unnu að því, með stuðningi móður, að byggja upp traust og koma á umgengni á forsendum barnsins, meðal annars undir eftirliti. Stuttu eftir að hafa þannig neitað að vinna að umgengni, fór hann í sjónvarpsviðtal og ásakaði barnsmóður sína um tálmanir. Heldur hann því fram að hún hafi ruðst inn á heimili hans með ofbeldi. Sjá nánar hér 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ísraelar beðnir um að sýna stillingu eftir flugskeytaárás Írans

Ísraelar beðnir um að sýna stillingu eftir flugskeytaárás Írans
Fréttir
Í gær

Einfætt íþróttakona ósátt við að þurfa að kaupa skópar hjá Nike – Þarf að henda helmingnum í ruslið

Einfætt íþróttakona ósátt við að þurfa að kaupa skópar hjá Nike – Þarf að henda helmingnum í ruslið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ekki martækur munur á Katrínu og Baldri í nýrri könnun

Ekki martækur munur á Katrínu og Baldri í nýrri könnun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fær bætur eftir handtöku og lögreglurannsókn – Lenti í vandræðum eftir að hafa keypt evrur fyrir vin

Fær bætur eftir handtöku og lögreglurannsókn – Lenti í vandræðum eftir að hafa keypt evrur fyrir vin
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jón Sverrir er barnaníðingurinn í Dalslaug – Var búinn að ávinna sér traust 13 ára drengja í marga mánuði

Jón Sverrir er barnaníðingurinn í Dalslaug – Var búinn að ávinna sér traust 13 ára drengja í marga mánuði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið