fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Bjarni fór á fyrirlestur Öldu Karenar í gærkvöldi: „Fyrir mér virkaði þetta eins og trúarsamkoma“ – Þetta er það sem hann sá

Ritstjórn DV
Laugardaginn 19. janúar 2019 11:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór á sjálfshjálparvakningarsamkomuna hennar Öldu Karenar í Laugardalshöllinni núna í kvöld,“ segir Bjarni Randver Sigurvinsson, guðfræðingur og trúarbragðafræðingur og stundakennari við Háskóla Íslands. Bjarni fór á fyrirlestur Öldu Karenar Hjaltalín í Laugardalshöll í gærkvöldi, LIFE Masterclass: Into Your Mind.

Umdeildur boðskapur

Um fátt hefur verið meira rætt í vikunni en Öldu Kareni sem vakti athygli með ummælum sínum um sjálfsvíg. Áður hafði hún vakið athygli fyrir að hvetja fólk til að kyssa peninga. Það sem allt snerist um í vikunni voru þó ummæli hennar um að setningin „Ég er nóg“ geti gagnast fólki í sjálfsvígshugleiðingum.

„Þetta er stærsti sjúkdómur sem skekur mannkynið og það er hugsunin „ég er ekki nóg“. Það er svo leiðinlegt að þetta er stærsti sjúkdómurinn af því að lausnin við þessu er svo einföld, það er bara setningin „þú ert nóg“,“ sagði Alda Karen en óhætt er að segja að ummæli hennar hafi vakið athygli.

Byrjaði á einlægum fyrirlestri Öldu Karenar

Alda Karen hélt svo fyrirlesturinn í gærkvöldi í Laugardalshöll og skrifar Bjarni um upplifun sína á Facebook-síðu sinni. Hann veitti DV góðfúslegt leyfi til að birta færsluna sem lýsir hans upplifun af fyrirlestrinum.

„Sjálfum þykir mér svona samkomur forvitnilegar út frá trúarbragðafélagsfræðilegum forsendum en hæglega má greina það sem þarna fór fram sem audience cult en það má þýða á íslensku sem hóp einstaklingshyggjusinnaðra áheyrenda enda um að ræða fólk úr ýmsum áttum sem hvert og eitt nýtir sér ákveðinn boðskap alfarið á eigin persónulegum forsendum,“ segir Bjarni í færslunni.

„Skipulag slíkra hópa getur verið lítið sem ekkert, enginn beitir neinn félagslegu taumhaldi að ráði og kennivaldið verður aldrei meira en hver og einn sættir sig við ef það er nokkuð á annað borð. Cult hugtakið hefur því allt aðra merkingu hér en tíðkast meðal trúarbragðaandstæðinga af ýmsum toga og í neikvæðum fjölmiðlaumfjöllunum um umdeilda trúarhópa af sértrúarlegum toga. Hvort slíkur hópur einstaklingshyggjusinnaðra áheyrenda geti flokkast sem trúarlegur er svo komið undir því hvernig trúarhugtakið er skilgreint,“ segir Bjarni sem fer svo í saumana á sjálfri dagskránni. Hann segir að dagskráin hafi hafist með líflegum og afar einlægum fyrirlestri Öldu Karenar þar sem hún talaði almennt um mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar undir formerkjum slagorðsins „Ég er nóg“.

„Í kjölfarið sýndi hún svo stutta kynningu af myndbandi frá bandarískum fyrirlesara sem hún er í tengslum við og fékk tvo Íslendinga í eins konar stofuviðtal, fyrst rope yoga gúrúinn Guðna Gunnarsson sem í kjölfarið flutti eigin fyrirlestur um sama efni út frá eigin sjónarhóli og síðan hjúkrunarfræðinginn Sigríði A. Pálmarsdóttir sem beitir sjálfsdáleiðslu sem meðferðarúrræði.“

„Virkaði eins og trúarsamkoma“

Bjarni segir að nokkuð hafi verið trúarlegar skírskotanir og það sem einkenndi framsetningu allra hafi verið áherslan á orkuna, eða lífsorkuna.

„Fyrir mér virkaði þetta eins og trúarsamkoma enda var nokkuð um trúarlegar skírskotanir hjá öllum fyrirlesurunum en þó alveg sérstaklega Guðna og Sigríði. Það sem einkenndi framsetningu allra var áherslan á orkuna (eða lífsorkuna) sem flæðir um allt en að auki vísaði Guðni í almættið og nefndi Sigríður (ef ég tók rétt eftir) gagnsemi dáleiðslu í að greina önnur (eða fyrri) líf. Þó svo að jógahugtakið hafi bara komið við sögu í formi Rope Yoga á einni glæru að baki Guðna var alveg ljóst að efnisatriðin í fyrirlestri hans voru mörg hver í ágætu samræmi við þau fræði. Engin trúarbrögð voru þó nefnd til sögunnar og engu þarna var beint gegn nokkrum trúarbrögðum. Og þó svo að þetta hafi virkað sem trúarsamkoma á mig efast ég um að það hafi gilt um aðra viðstadda nema í undantekningartilfellum.“

Bjarni Randver er guðfræðingur og trúarbragðafræðingur.

Ekkert kom fram sem getur talist varhugavert

Bjarni segir að fyrirlestrarnir hafi reynst ósköp saklausir og viðtölin ágætlega áhugaverð. Ekkert hafi komið þarna fram sem geti á nokkurn hátt talist varhugavert.

„Alda Karen hefur verið gagnrýnd fyrir óvarlega eða illa ígrundaða framsetningu í kynningu sinni á þessu námskeiði en reyndi greinilega að vanda sig þegar að því kom. Engum töfralausnum var heitið, engir læknar eða sálfræðingar voru gagnrýndir og engu var afneitað í vestrænum heilbrigðisvísindum. Allt það fólk sem kom þarna fram virkaði á mig sem góðviljaðir einstaklingar sem vildu gera sér grein fyrir eigin takmörkunum og miðla áfram þeirri reynslu og þeim þroska sem þeir hefðu þegar náð að afla sér í von um að fleiri taki sjálfa sig í sátt og læri að elska sjálfa sig á heilbrigðan hátt.“

Bjarni segir að í raun hafi framsetningin í gærkvöldi verið að verulegu leyti sjálfhverf þótt sömuleiðis hafi verið komið inn á jákvæð samfélagsáhrif jákvæðrar sjálfsmyndar og gagnsemi hennar fyrir náungann.

„Segja má að áhersla fyrirlesaranna hafi verið í ágætu samræmi við þau orð Jesú Krists að manni beri að elska náungann eins og sjálfan sig en það sagði hann líkt æðsta og fremsta boðorðinu um að elska Drottinn Guð af öllu hjarta, allri sálu og öllum huga og væri það grunnur (og þar með túlkunarlykill) alls lögmálsins (Mt 22:37-40). Þetta þýðir með öðrum orðum að jákvæð sjálfsmynd er forsenda þess að menn elski náungann með heilbrigðum hætti en hjá fyrirlesurunum var megináherslan á sjálfan upphafsreitinn, nauðsyn þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd, og gerðu þeir það með einföldum og skilmerkilegum hætti á alþýðlega vísu.“

Gagnrýnir lokaatriðið

Bjarni kemur svo að lokaatriðinu sem hann var ekki nógu sáttur við.

„En þótt ég væri ágætlega sáttur við megnið af dagskránni og telji þennan boðskap alveg geta gagnast ýmsum verð ég samt að gagnrýna sjálft lokaatriðið þar sem allur mannskapurinn, um 1000 gestir, voru kallaðir úr stúkunum fram á gólf til að taka þar þátt í einni allsherjar sjálfstyrkingarhópæfingu.“

Bjarni segir að öllum hafi verið raðað í nokkrar raðir þar sem tveir og tveir voru látnir standa augliti til auglitis og láta þar í ljós hvort hinar ýmsu fullyrðingar sem Alda Karen las upp ættu við um þá sjálfa.

„Vandinn er sá að þessar fullyrðingar reyndust sumar afar persónulegar og alls ekki sjálfgefið að öllum væri það að skapi að gefa neitt upp um þær fyrir ókunnugum en engin aðvörun var veitt um slíkt svo ég tæki eftir áður en allir voru kallaðir fram. Ég hafði þó á tilfinningunni að þarna myndi eitthvað fara fram sem ég væri ekki tilbúinn til að taka þátt í og sat því áfram uppi í stúkunni með fáeinum öðrum hræðum og varð brátt feginn að hafa gert það.“

Bjarni bendir á að sjálfshjálparnámskeiðið hafi ekki verið ódýrt en hann sjái ekkert athugavert við að rukkað sé fyrir það. Sjálfur hefði hann ekki borgað sig inn á það og raunar ákvað hann ekki að mæta fyrr en honum var boðið sér að kostnaðarlausu.

„Það hefði alveg verið hægt að fara dýpra í hlutina þarna og þetta var ekki akademískt námskeið en í heildina var þetta allt í lagi og jafnvel gagnlegt nema helst lokaatriðið sem hefði mátt standa betur að, t.d. með því að skýra betur strax í upphafi hvað til stæði. Alda Karen er hæfileikarík og ég vona að hún eigi eftir að feta menntaveginn frekar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni