fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Íslenskt fyrirtæki grunað um svindl – Málið kært til lögreglu

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 16. janúar 2019 09:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á meintu tegundasvindli með fisk til útflutnings. Íslenskt fiskvinnslufyrirtæki er grunað um að hafa selt íslenskri umboðsverslun með fisk og fiskafurðir verðlitlar fiskafurðir (keilu) sem verðmeiri vöru (steinbít) á árunum 2010 og 2011.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Matvælastofnun sendi frá sér. Þar segir að umboðsverslunin hafi framselt afurðirnar erlendum kaupendum.

„Málið hófst þegar Matvælastofnun barst ábending um meint brot. Rannsókn Matvælastofnunar benti til þess að ábendingin ætti við rök að styðjast og var málinu því vísað til lögreglu. Brotið varðar blekkingarákvæði matvælalaga og almenn hegningarlög (fjársvik).“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu