Karlmaður á fertugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um að hafa átt þátt í falli konu af svölum íbúðar í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöldi. Konan, sem er á þrítugsaldri, er illa slösuð eftir fallið, en þó ekki í lífshættu.
Sjá einnig: Konu hrint fram af svölum í Breiðholti – Alvarlega slösuð
Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglu. „Rannsókn málsins er skammt á veg komin og ákvörðun um gæsluvarðhald liggur ekki fyrir. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglu.