Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um slagsmál í Austurstræti í miðborg Reykjavíkur klukkan rétt rúmlega tíu í gærkvöldi.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang vildi árásarþoli enga aðstoð og lítið tjá sig um hvað hafi verið í gangi. Sá sem hafði sig mest í frammi í slagsmálunum var farinn af vettvangi, að sögn lögreglu.
Lögregla fékk svo tilkynningu á öðrum tímanum í nótt um mann í annarlegu ástandi í Breiðholti. Maðurinn hótaði öðrum íbúum og var sagður vera með eggvopn. Lögregla handtók manninn skömmu síðar og var hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.