Nýr verðlaunapeningur fyrir Reykjavíkurmaraþon hefur verið afhjúpaður en þar er Perlan í forgrunni. Nú þegar hafa rúmlega sjö þúsund manns skráð sig í hlaupið. Í fréttatilkynningu vegna málsins segir:
„Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 24. ágúst næstkomandi og nú þegar hafa rúmlega sjö þúsund skráð sig til þátttöku. Áheitasöfnunin á hlaupastyrkur.is gengur vel og er búið að safna rúmlega 17 milljónum króna til góðra málefna.
Nýr og glæsilegur verðlaunapeningur ársins lítur dagsins ljós í ár. Í forgrunni hans er Perlan sem er eitt af kennileitum Reykjavíkur og sést vel á maraþonbrautinni. Hönnuður verðlaunapeningsins er Guðmundur David Terrazas en hann er sjálfur hlaupari. Guðmundur er grafískur hönnuður að mennt og starfar sem listrænn stjórnandi hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu.
Í fyrra var Hallgrímskirkja í forgrunni og er stefnt að því að hafa nýtt kennileiti úr maraþoninu á verðlaunapeningnum fram að 40 ára afmæli hlaupsins árið 2024.“