Pylsuvagninn Bæjarins beztu, við Tryggvagötu, hefur lengi verið eitt af kennileitum Reykjavíkur. Í þessum skrifuðum orðum er hins vegar verið að standsetja slíkan vagn í miðbæ Akureyrar og hefja Bæjarins beztu sölu á pylsum fyrir Akureyringa kl. 13 í dag.
„Bæjarins beztu eru í samstarfi við Barða Jónsson sem er borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann mun sjá um rekstur Bæjarins beztu á Akureyri. Við smíðuðum vagn sem er eins og sá sem er í Tryggvagötu,“ segir Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins beztu. Vagninn var fluttur til Akureyrar á fimmtudagsnóttina.
Guðrún segir að upphafsár Bæjarins beztu sé ekki á hreinu en fyrirtækið hefur verið í eigu fjölskyldu hennar frá árinu 1937. „Við munum hafa sama háttinn á og í Reykjavík, þ.e. pylsan verður ekki með rauðkáli og allt sama hráefni og notað er í Reykjavík verður hjá Bæjarins beztu á Akureyri líka.“
En er Guðrún bjartsýn á að Akureyringar taki opnum örmum fyrirbæri sem er svo rótgróið höfuðborginni og eitt af kennileitum hennar?
„Ég er mjög bjartsýn á það. Núna heitir þetta ekki lengur Akureyrarkaupstaður heldur Akureyrarbær og því finnst mér rakið að þarna sé til pylsusala sem heitir Bæjarins beztu.“