fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Frábær saga af Guðna forseta: „Sumt í lífinu er of fallegt til að deila því ekki“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 17. apríl 2019 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta kvöld var aftakaveður en það breytti ekki því að á tilsettum tíma lagði forsetabíllinn fyrir utan Gamla skála og út úr hríðarbylnum kom herra Guðni Th. Jóhannesson í opinbera heimsókn,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir prestur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Þar segir hún skemmtilega sögu af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, en í mars fóru sjálfaboðaliðar í verkefninu Örninn í Vatnaskóg með ungmenni sem misst hafa náinn ástvin.

„Viku áður höfðum við skrifað forseta Íslands og beðið hann að ávarpa hópinn í upphafi ferðar og hann svarað á þá leið að hann yrði á ferðinni á föstudagskvöldinu og myndi renna við í Skóginum,“ segir Jóna og bætir við að aftakaveður hafi verið umrætt kvöld. Það breytti þó ekki því að Guðni mætti á tilsettum tíma.

„Hann tjáði unga fólkinu að hann hefði hvorki látið veður né nokkuð annað stöðva sig í því að hitta þau þetta kvöld. Það var ógleymanleg stund við arineld þegar forsetinn ræddi við ungmennin. Tár féllu en hjörtun fylltust kjarki og von. Þegar forsetinn gekk út til að halda heim hafði ég dregið orð úr Biblíuöskju og við sendum hann út með hlýjar kveðjur og veganesti úr Markúsarguðspjalli sem hljóðaði svona: Jesús sagði: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“

Jóna segir svo að tveimur vikum síðar hafi hún staðið með fermingarhóp við kirkjudyr þar sem hún var að fara yfir ritningarorðin sem þú höfðu valið sér til að flytja við fermingarathöfnina.

„Í hópnum var bróðursonur forsetans, Dagur Orri, og þegar ég innti hann eftir sínu versi þá horfði hann beint í augun á mér og mælti: Jesús sagði: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“

Við myndatöku í lok athafnar sagði ég kirkjugestum af þessari skemmtilegu tilviljun með ritningarorðin þeirra frænda. Kom þá í ljós að eldri bróðir fermingar­drengsins, JóiPé sem var við athöfnina, hafði einmitt valið þetta sama ritningarvers fimm árum áður, en sá yngri verið allsendis óvitandi um það. Sumt í lífinu er of fallegt til að deila því ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“