Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifar stutta minningargrein um öðlinginn Helga Sigurðsson úrsmið en hann rak verslun í um hálfa öld á Skólavörðustíg. Helgi setti svip sinn á borgina með fallegri búð og ljúfri framkomu. Dagur segir:
„Fjölskylda Helga Sigurðssonar úrsmiðs á Skólavörðustíg bar mér þær sorgarfréttir að Helgi hefði látist um helgina. Helgi setti sannarlega svip á miðborgina og Skólavörðustíginn þar sem hann rak verslun sina í hálfa öld og vakti athygli og aðdáun, ekki aðeins fyrir fallega búð, iðn sína og listfengi heldur ekki síður fyrir vingjarnlegt viðmót, frábæra umgengni og alúð.“
Þá segir Dagur:
Helgi fór á undan með góðu fordæmi, hélt hreinu í kringum sig og taldi ekki eftir sér að fjarlægja rusl, tyggjó eða hvaðeina. Hann var sannkallaður fyrirmyndar kaupmaður og borgari. Ég votta fjölskyldu Helga mína innilegustu samúð, það er sannlega sjónarsviptir af Helga úrsmið.“
Egill Helgason fjölmiðlamaður segir um Helga:
„Sérstakur öðlingur. Fór oft með úr til hans. Hann var heldur tregur að rukka fyrir viðgerðirnar.“