Þórgnýr Thoroddsen, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Pírata og formaður ÍTR, lýsir á Twitter voveiflegum atburði sem hann varð vitni að í Kringlunni. Þar sá hann hóp eldri borgara níðast á jafnaldra sínum. Samkvæmt Þórgný hafði hann það unnið sér til saka að gagnrýna ekki innflytjendur.
„Varð vitni að afar grófum persónuníð og því sem ég get ekki lýst öðruvísi en sem andlegu ofbeldi í Kringlunni áðan. Hópur af eldra fólki bókstaflega reif eldri mann í sig sem tók upp málstað innflytjenda í spjalli. Hann stóð upp og fór á meðan þau kölluðu hann öllum illum nöfnum,“ lýsir Þórgnýr.
Þórgnýr hefur bæði unnið í leiksskóla og grunnskóla en hann segir ekki einu sinni börn vera svo grimm. „Ég hef mikið unnið með börnum og þau geta verið grimm, en þau vita hvenær nóg er komið. Þegar hann fór gekk ég til hans og þakkaði honum fyrir að láta útlendingahatur ekki ógagnrýnt. Við erum öll saman í þessu.,“ segir Þórgnýr.
Hann segir svo að lokum að öldungarnir hafi ekki kunnað að skammast sín. „Þegar hann var farinn kom annar vinur þeirra og settist hjá þeim og þau fóru að grobba sig af því að hafa fælt þennan fyrri burt.“
Varð vitni að afar grófum persónuníð og því sem ég get ekki lýst öðruvísi en sem andlegu ofbeldi í Kringlunni áðan. Hópur af eldra fólki bókstaflega reif eldri mann í sig sem tók upp málstað innflytjenda í spjalli. Hann stóð upp og fór á meðan þau kölluðu hann öllum illum nöfnum.
— θourkniːr̥ (@thorgnyr) March 19, 2019