„Miðað við þessa reynslu mína þá verð ég að ráðleggja fólki að vista ekki kreditkortanúmer sín á ýmsum bókunarsíðum á netinu, jafnvel þó að um sé að ræða stórar síður eins og booking.com,“ segir Stefanía Ósk Þorsteinsdóttir, alltaf kölluð Ósk, í samtali við DV. Hún hefur undanfarna daga staðið í miklum bréfaskriftum við starfsmenn bókunarsíðunnar stóru vegna hótelbókunar sem skyndilega birtist á reikningi hennar og Ósk kannast ekki við. Viðbrögð booking.com hafa valdið henni miklum vonbrigðum en meðal annars hefur hún verið sökuð um að vera óprúttinn tölvuhakkari. „Þetta er búið að kosta mikinn tíma og ónæði.“
Skráð fyrir bókun hafnfirskrar fjölskyldu
Forsaga málsins er sú að Ósk fékk á dögunum textaskilaboð á símann sinn þess efnis að það styttist í helgarferð hennar til Edinborgar. „Ég hrökk við enda hafði ég ekki bókað neina ferð þangað,“ segir Ósk. Þegar hún kannaði málið frekar sá hún að á reikningi hennar á booking.com var sannarlega skráð bókun á gistingu í Edinborg í nokkra daga fyrir tvo fullorðna og eitt barn. Fljótlega komst hún að því að um var að ræða fjölskyldu frá Hafnarfirði sem að hafði sett inn allt annað kreditkortanúmer.
„Eftir á að hyggja var ég mjög heppinn að þetta voru Íslendingar en ekki útlendingar þannig að auðvelt var að finna fólkið. Ég hringdi í fjölskylduföðurinn sem var skrifaður fyrir pöntuninni og spurði hann hvort fjölskylda hans væri á leið til Edinborgar fljótlega og hvort að kreditkortanúmerið hans endaði á tilteknum tölum,“ segir Ósk. Að hennar sögn vissi maðurinn ekki hvaðan á hann stóð veðrið, skiljanlega, en þegar hún hafði útskýrt málavöxtu fyrir honum varð þeim hjónum mjög brugðið.
Sökuð um að vera svikull hakkari
„Okkur fannst þetta náttúrlega stórundarlegt og höfum síðan verið í góðu sambandi við að leysa þetta mál,“ segir Ósk. Að hennar sögn hafi báðir aðilar málsins sent
ítrekað tölvupóst á booking.com og hringt til þess að óska eftir skýringum og fá bókunina leiðrétta. Það gerðist ekki, heldur brást fyrirtækið við með undarlegum hætti. „Hafnfirska fjölskyldan fékk þau svör frá booking.com að ég væri augljóslega svikull hakkari og þau skyldu loka sínum aðgangi og kreditkorti.“ Þar sem ruglingurinn var augljóslega algjör ákváðu hafnfirsku hjónin að frysta kortið sitt tímabundið. „Það vildi svo heppilega til að ég hafði skömmu áður lokað kreditkortinu mínu út af ótengdu máli. Það var eins gott því ég fékk fljótlega skilaboð frá booking.com að gjaldfærsla á mitt kort hefði ekki gengið og því myndi ég fljótlega missa gistinguna í Edinborg og þurfa að greiða sekt. Ef kortið mitt hefði verið opið þá hefði hótelið gjaldfært háa upphæð af mínu kreditkorti sem ég hefði örugglega aldrei fengið endurgreidda. Þetta var því lán í óláni,“ segir Stefanía.
Hún er afar ósátt við booking.com og þau tilsvör sem hún hefur fengið frá fyrirtækinu. „Ég hef óskað eftir skýringum frá fyrirtækinu en hef ekkert heyrt í rúma viku. Ég hef notað þessa bókunarsíðu mjög mikið, en öryggi síðunnar er greinilega ekki meira en þetta. Ég verð því að ráðleggja öllum að hafa varann á varðandi skráningu kreditkorta sinna á netinu,“ segir Ósk.