Mikil viðbúnaður lögreglu er nú í verslunargötum miðbæjar Barnsley á Englandi. Kona er sögð hafa stungið mann með hnífi. Vegfarendur halda margir til inni í verslunum sem eru læstar. Lögregla hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að hún sé með mikinn viðbúnað í miðborginni og er fólk beðið um að vera á varðbergi. Segir lögregla atvikið vera alvarlegt.
Sjá nánar meðal annars á Sky News.
Fréttin verður uppfærð
Samkvæmt Sky segir afgreiðslukona á Subway að lögregla hafi neytt allra rekstraaðila til að loka fyrirtækjum sínum í klukkustund á meðan árásarkonunnar var leitað. Þá er leitað að mögulegum vitorðsaðilum hennar.
Kl. 09:55 Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu sem sagt er frá á Metro hefur einn einstaklingur verið handtekinn vegna málsins og karlmaður hlaut áverka sem ekki eru taldir alvarlegir.
Kl. 13:00 Samkvæmt Daily Mail hefur lögregla ekki staðfest kyn árásarmannsins en fjöldi sjónavotta vitnar um að þetta hafi verið asísk kona sem hélt á hnífi og var með höfuðklút. Hún særði einn vegfaranda og elti aðra með hnífinn á lofti. Hún er núna í haldi lögreglu.