Fyrr í morgun barst tilkynning til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um einstakling sem hafði gert sig heimkominn í fjölbýlishúsi í austurborginni. Hafði hann hreiðrað um sig á stigagangi hússins.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar nú í hádeginu.
Fram kemur að viðkomandi einstaklingur hafi verið vakinn þar sem hann lá sofandi á stigaganginum og þvínæst vísað út.
Þá barst tilkynning um umferðaróhapp til lögreglustöðvar 4 snemma í morgun en stöðin sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi.
Bifreið var ekið aftan á aðra bifreið sem við höggið hafnaði á þeirri þriðju. Það var svo fyrsta ökutækið sem endaði ofan í skurði undir grindverki. Einn ökumaður þurfti að leita á slysadeild með minniháttar áverka og fjarlægja þurfti tvær bifreiðar með kranabíl þar sem þær voru óökuhæfar eftir óhappið.