fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Sprengjugeymslur við Norðlingaholt ekki færðar þrátt fyrir loforð

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 22. september 2018 12:00

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Hólmsheiði standa hús þar sem félagið Ólafur Gíslason & Co. hefur geymt sprengiefni síðan 1963. Þegar uppbygging í Norðlingaholti hófst árið 2003 var Reykjavíkurborg gert viðvart um að sprengjugeymslurnar þyrftu að hverfa. Skömmu síðar fékk hestamannafélagið Fákur úthlutað svæði í Almannadal, rétt við sprengjugeymslurnar, til uppbyggingar á hesthúsum. Nú eru liðin fimmtán ár, borgin teygir sig austar og Almannadalur sífellt að verða fjölmennari og líflegri. Þrátt fyrir gefin loforð borgarinnar er sprengiefni enn þá geymt á Hólmsheiði.

 

Mikið útivistarsvæði

Bjarni Jónsson er formaður hesthúsaeiganda í Almannadal en þar var hesthúsum úthlutað árið 2006 fyrir um 1.600 hross innan vébanda Fáks. Bjarni hefur í gegnum tíðina haft samband við borgina út af geymslunum og telur að þær verði að fara sem fyrst enda standa sum hesthúsin aðeins tæplega 200 metrum frá þeim.

„Ég er búinn að benda þeim á að borgin hafi lofað að færa geymslurnar fyrir löngu síðan en þeir draga lappirnar í þessu máli. Fólk sem er með hesta þarna hefur sótt um að fá að búa á þessu svæði en hefur fengið höfnun, meðal annars vegna nálægðarinnar við sprengjugeymslurnar.“

Hvaða önnur áhrif hefur þetta á ykkur?

„Í sjálfu sér engin nema ef þetta myndi springa. Við sjáum vörubíla í fylgd lögreglu og slökkviliðs fara þarna þannig að þetta er í notkun. Hér í Almannadal er að rísa mikið útivistarsvæði, göngu- og hjólastígar komnir um alla Hólmsheiði. Það er verið að benda fólki á að stunda hér útiveru, innan um sprengjur. Það er mjög sérstakt að hægt sé skipuleggja hesthúsahverfi, með fjölmörgu áhugafólki, fjölda skepna og túrista, innan um þetta. Fólk er að mæta hingað um átta á morgnana og sumir eru hérna allan daginn. Samkvæmt borginni virðist það vera í lagi og aðeins hætta á að geymslurnar springi á nóttunni. Það sem er hins vegar alvarlegast í þessu er nálægðin við íbúðahverfin í Norðlingaholti.“

 

Ljósmynd: DV/Hanna

Hundruðum kílóa af sprengiefni stolið

Þegar uppbygging í Norðlingaholti hófst árið 2003 komu fram ábendingar um að færa þyrfti geymslurnar vegna öryggissjónarmiða. Öryggismálum var þá einnig mjög ábótavant sem kom bersýnilega í ljós í júlí það sama ár þegar brotist var inn og sprengiefni stolið.

Þjófarnir beittu þá klippum til að komast í gegnum vírgirðingu og borvélum til að opna hurðir sem voru þó úr sérstyrktu stáli. Náðu þeir að komast á brott með 245 kílógrömm af dýnamíti í túpum og rúllum.

Á þessum tíma benti samráðsnefnd um stórslysavarnir á að nauðsynlegt væri að flytja geymslurnar í burtu vegna uppbyggingar íbúðahverfis í Norðlingaholti, vegna öryggisfjarlægða sem verða að vera til staðar. Sú reglugerð var uppfærð núna í vor.

Árið 2004 vakti Morgunblaðið athygli á að dregist hefði að færa geymslurnar og sagði Björn Axelsson, umhverfisstjóri borgarinnar, þá að verið væri að vinna að lausn og reiknað með því að þær færu lengra upp á Hólmsheiðina. Finna átti lóð um áramótin og vonast var til að flutningurinn yrði fyrri part árs 2005. Á þeim tíma voru 1.050 metrar frá geymslunni yfir í íbúðabyggðina og uppbygging í Almannadal ekki hafin.

 

Leyfilegt magn sprengiefnis lækkað

Ekkert varð af flutningnum þau áramót og síðan leið tíminn. Eftir innbrotið voru öryggismál hert en þegar áhættumat var gert árið 2011 stóðust geymslurnar ekki kröfur gagnvart umhverfinu. Þar var til dæmis tekið fram að geymslurnar væru of nálægt Suðurlandsveginum.

Aftur var farið í að finna nýjar staðsetningar og bæði Geldinganes og Álfsnes skoðuð í því samhengi. Báðar þær staðsetningar voru hins vegar slegnar út af borðinu en magn leyfilegs sprengiefnis í geymslunum minnkað úr 50 tonnum niður í 10. Síðan hafa liðið níu ár og byggðin í kring byggst jafnt og þétt upp.

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að með lækkuninni hafi áhættan verið minnkuð til muna. Þegar áhættan er metin er tekið tillit til ýmissa þátta, til dæmis hvort um er að ræða íbúðarhúsnæði eða skólabyggingar eða aðrar byggingar. Að sögn Jóns eru áhættufjarlægðirnar innan ásættanlegra marka. Hann segir:

„Auðvitað vilja allir hafa þetta sem lengst frá þar sem þeir eru. Þar sem ekki er búið að færa þetta þá gátum við lækkað það magn sprengiefnis sem má geyma á staðnum.“

Í þessu tilfelli verður lágmarksfjarlægð sprengjugeymslu frá íbúðabyggð að vera 600 metrar og 800 metrar frá til dæmis leikvöllum og fjölförnum götum og 190 metrar frá öðrum byggingum. Eins og áður segir eru geymslurnar um 200 metrum frá hestamannasvæðinu. Þær eru 320 metrum frá Suðurlandsveginum, 280 metrum frá spennustöð Orkuveitunnar og 750 metrum frá íbúðabyggðinni í Norðlingaholti.

 

Engar skýringar á töfum

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir borgarfulltrúi er formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Hún getur ekki svarað því af hverju vinnan við flutninginn hafi ekki gengið eftir. Við DV segir hún:

„Ég hef ekki svar á reiðum höndum hvað það varðar en ég tel að það sé brýnt að fara í saumana á þessu máli og endurskoða starfsemina.“

Munt þú beita þér fyrir því að geymslurnar verði færðar?

„Hiklaust, þegar þetta er svona nálægt íbúðabyggð. Þetta er stórt land og mikið til af svæðum fyrir þessa starfsemi.“

Nánari útfærsla liggur ekki fyrir en ljóst er að uppbygging á svæðinu er mikil og geymslurnar nálægt löglegum fjarlægðarmörkum. Þær hamla því frekari uppbyggingu á svæðinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga