fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Deyja börnin okkar vegna tilgangsleysis?

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. september 2018 07:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Getur verið að unga fólkið okkar sé að falla í valinn, af völdum sjálfsvíga eða neysluslysa, vegna þess að það skorti þá tilfinningu að það eigi heima hér í heiminum okkar? Getur hugsast að veruleikinn, sem við höfum skapað í menningu okkar, sé svo merkingarlaus að börnin deyi af tilgangsleysi?

Þessum spurningum varpar Bjarni Karlsson, prestur, fram í pistli í Fréttablaðinu í dag. Hann segir þar í upphafi sögu af sjálfum sér á yngri árum, unglingskjána, sem vissi ekki neitt um neitt.

„Þegar ég var unglingskjáni og vissi ekki neitt um neitt vissi ég samt að ég tilheyrði þjóðfélagi sem reiknaði með mér.“

Segir Bjarni og víkur síðan orðum að Jónasi bónda í Kálfholti.

„„Það vantar ekki viljann,“ sagði Jónas bóndi í Kálfholti og brosti þolinmóður þegar ungi vinnumaðurinn hafði gert enn eitt axarskaftið.“

Segir Bjarni og bendir á að almennt hafi það verið afstaðan að á endanum yrði hann líklega til einhvers nýtur.

„Ég ólst upp við frásagnir foreldra minna af því hvernig þau komu þaki yfir höfuðið í samhentu striti og trúði því að ég gæti þetta líka. Þannig leið, held ég, flestum af minni kynslóð. Við trúðum að við gætum gert eitthvað og verið eitthvað sem skipti okkur og jafnvel aðra máli.“

Bjarni segir að djúp angist ríki hjá þjóðinni vegna unga fólksins sem deyr, tekur eigin líf eða fellur fyrir fíkniefnum.

„Við finnum öll til og horfum spyrjandi hvert á annað. Ég hef ekki svarið en það læðist að mér sá grunur að e.t.v. sé tilfinningin fyrir því að eiga heima í heiminum að þynnast út. Við lifum í veröld sem virðist orðin að einkalóð fárra. Almenningur er á vergangi í milljónavís og einhvern veginn hefur okkur tekist að stilla málum þannig upp hér heima að margt ungt fólk er ekki að tengja við þjóðfélagið. Þau sjá engan bíða eftir kröftum þeirra og það er enginn Jónas bóndi sem ögrar til dáða. Getur hugsast að veruleikinn sem við höfum skapað í menningu okkar sé svo merkingarlaus að börnin okkar deyi af tilgangsleysi? Getur verið að einfeldningsleg trú okkar á efnahagsvöxt og markaðslögmál ræni ekki bara náttúruna þolinmæðinni gagnvart okkur heldur sé dauði barnanna okkar önnur birtingarmynd sama fáránleika?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“
Fréttir
Í gær

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur
Fréttir
Í gær

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Í gær

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips
Fréttir
Í gær

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband