Á fimmta tímanum í nótt var tilkynnt um umferðaróhapp á Vesturlandsvegi við Skarhólabraut. Bíl hafði verið ekið á ljósastaur. Í dagbók lögreglunnar segir að búið hafi verið að flytja manninn á slysadeild þegar lögreglumenn komu á vettvang og sé ekki vitað um meiðsl hans.
Upp úr klukkan eitt í nótt varð umferðaróhapp á Nesjavallaleið þar sem bíl var ekið á hitaveiturör. Tveir ungir menn voru í bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild. Meiðsl þeirra eru sögð minniháttar.