fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Ævar hefur í heilt ár nær eingöngu borðað rautt kjöt: „Mér er alveg sama um þá sem eru vegan“

Óðinn Svan Óðinsson
Laugardaginn 18. ágúst 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ævar Austfjörð er mikill áhugamaður um næringu. Í ágúst á síðasta ári rakst hann á lækni á netinu sem var að leita sér að sjálfboðaliðum til að taka þátt í rannsókn sem fólst í því að borða bara kjöt og drekka vatn í 90 daga. Nú rúmu ári síðar hefur Ævar borðað rúmlega hálft tonn af kjöti og aldrei liðið betur.

„Þetta hefur gert mér gríðarlega gott. Ég losnaði við liðverki, léttist um nokkur kíló, hef betri einbeitingu og mun betri starfsorku. Ég hef verið að bæta mig í ræktinni og er farinn að geta gert hluti þar sem ég gerði síðast þegar ég var 25 ára. Þetta er bara allt annað líf,“ segir Ævar sem borðar nær eingöngu rautt kjöt.

Mælir með meira kjötáti

Ævar mælir hiklaust með því að landsmenn borði meira kjöt. „Mér dettur ekki til hugar að halda því fram að allir eigi að borða eingöngu kjöt. En miðað við það sem ég hef séð gerast hjá fólki sem prófar þá held ég að fólk ætti allavega að borða meira kjöt almennt. Að sjálfsögðu fisk, egg og osta líka ef fólk vill. Þessi matur er auðmeltur og mannslíkaminn getur nýtt nánast allt sem borðað er. Með plönturnar hins vegar þá er stór hluti af þeim sem gerir ekkert annað en að fara út hinum megin,“ segir hann.

Þrátt fyrir bætta heilsu og betri líðan hafa margir lýst yfir efasemdum vegna mataræðisins sem Ævar hefur tileinkað sér. „Margir halda sennilega að ég sé algjör bjáni sem geri þetta til þess eins að fá athygli. Umræðan á  Facebook-hópnum Vegan Ísland var á þann veg að ég og fleiri á þessari línu værum að monta okkur af því að borða mikið kjöt til að finnast við vera meiri menn. Það lýsir náttúrlega bara hugarástandi þeirra sem þetta segja,“ segir Ævar en honum hefur verið meinaður aðgangur að hópnum.

Venjuleg máltíð hjá Ævari

Alveg sama um grænkera

Aðspurður um þá sem borða einungis plöntuafurðir segist Ævar alls ekkert hafa á móti þeim hópi fólks. „Mér er alveg sama um þá sem eru vegan. Ég vona bara að enginn af mínum nánustu feti þá braut,“ segir hann og bætir við: „Ég held hins vegar að það muni á endanum koma niður á heilsunni því líkaminn þarf bæði dýraprótein og dýrafitu. Þetta er næringarsnautt fæði sem þarf að hafa töluvert fyrir að láta ganga upp.“

Hann furðar sig á skoðunum þeirra sem neita sér um dýraafurðir af mannúðarástæðum. „Mér finnst þeir sem gera þetta samviskunnar vegna gera þetta á röngum forsendum. Þeir sem gera þetta til að vernda dýrin ættu frekar að einbeita sér að því að velja afurðir dýra sem vitað er með vissu að fá mannúðlegt og gott eldi. Að gera þetta fyrir dýrin er svona eins og að ætla að vera sjálfboðaliði Rauða krossins á vígvelli að ævistarfi. Þú gætir hugsanlega komið heill út úr því en líkurnar eru afar litlar,“ segir Ævar.

Er hvergi nærri hættur

Ævar hyggst halda ótrauður áfram og hvetur þá sem hafa áhuga á sama lífsstíl að bæta sér í hópinn Iceland Carnivore Tribe á Facebook en þar eru yfir 2.000 manns. „Ég sé enga ástæðu til að breyta til. Er gáfulegt að fara að borða aftur eitthvað sem augljóslega var ekki að gera mér gott? Það þykir mér ekki. Konan mín vill ekki að ég breyti út af. Hún kann betur við mig svona. En hvort ég á aldrei eftir að smakka plöntuafurðir er ekki gott að segja, ef ég til dæmis fer í mat til mömmu. Mér þykir samt líklegra að ég fái mér kökusneið eða ís frekar en að troða í mig einhverju grænmeti sem ekkert gefur af sér,“ segir Ævar að lokum og hlær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu