Björg Guðjónsdóttir, íbúa á Akureyri brá heldur betur í brún þegar hún tók eftir því að tveir ferðamenn sem höfðu lagt leið sína í bæinn nýttu strætóskýli í bænum sem eldhús.
Eins og sjá má á myndinni hér að ofan höfðu ferðamennirnir tveir komið sér vel fyrir í skýlinu og hafst handa við að elda kvöldmat. „Sennilega góða súpa,“ skrifaði Björg við myndina sem hún birti á Facebook-síðu sinni.
Björg veitti DV góðfúslegt leyfi til að birta myndina en í athugasemdum við myndina vildi hún koma því að framfæri að ferðamennirnir tveir tóku vel til eftir matinn og skyldu ekki eftir sig rusl.