fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Margrét er nýr forstjóri Nova

Auður Ösp
Föstudaginn 17. ágúst 2018 10:47

Margrét B. Tryggvadóttir forstjóri og skemmtanastjóri Nova

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur ráðið Margréti B. Tryggvadóttur í starf forstjóra félagsins. Margrét var áður aðstoðarforstjóri Nova og hefur verið einn af lykilstjórnendum fyrirtækisins allt frá stofnun. Margrét hefur tæplega tuttugu ára reynslu sem stjórnandi í fjarskiptageiranum en áður en hún kom að stofnun Nova starfaði hún meðal annars fyrir Tal og Vodafone.

Samhliða þessum breytingum þá hefur tæknisviði Nova verið skipt upp í tvö svið; fjarskiptasvið og upplýsingatæknisvið. Benedikt Ragnarsson mun leiða fjarskiptasvið Nova og Gunnar A. Ólafsson mun stýra upplýsingatæknisviði. Báðir hafa þeir verið lykilstjórnendur hjá Nova undanfarin 10 ár.

Liv Bergþórsdóttir, fráfarandi forstjóri félagsins, og Jóakim Reynisson, fráfarandi framkvæmdastjóri tæknisviðs Nova, láta nú af störfum hjá félaginu en munu áfram gegna ráðgjafarhlutverki og vera nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði.

Margrét kveðst hlakka til að taka við stjórninni á „stærsta skemmtistað í heimi“ : „Við ætlum að halda áfram að stækka skemmtistaðinn, viðhalda gleðinni og bæta við lagalistann fyrir viðskiptavini okkar. Vöxturinn og breytingarnar sem við höfum upplifað síðustu ár hafa verið ótrúlegar og ég hlakka til, í þessu nýja hlutverki, að vinna enn fleiri sigra með starfsfólki Nova.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“