Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi þingmaður og baráttumaður fyrir virkjun í Ófeigsfirði er með leyfi fyrir tvær íbúðir í gegnum Airbnb. Þessar upplýsingar má nálgast á heimasíðu Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Hann er í hópi fjölmargra þekktra Íslendinga sem mokar inn seðlum í gegnum Airbnb. Í helgarblaði DV má lesa um íbúðir margra þekktra Íslendinga sem eru skráðar í þessu kerfi. Frétt um að þingmenn væru að leigja út íbúðir sínar í gegnum Airbnb vöktu mikla athygli í vikunni og vildu lesendur meina að með þessu væru þeir að taka þátt í að auka á vandann. En rétt er að taka fram að Kristinn er fyrrverandi þingmaður til margra ára.
Kristinn H. Gunnarsson leigir út eign í Hlíðahverfi Reykjavíkur. Kristinn sér sjálfur um sína eign sem er um 60 fermetrar að stærð.
Nóttin í íbúð Kristins kostar núna aðeins um rétt rúmar tíu þúsund krónur. Líklegasta skýringin á þessu ódýra verði er að aðeins eru örfáir dagar í boði í júlí og ágúst. Kristinn leigir íbúðina út nokkra mánuði á ári miðað við dagatal Airbnb en á næsta ári er íbúðin til leigu í um fjóra mánuði hið minnsta.
Kristinn H. ætlar hins vegar að moka inn seðlum um jóla og áramót. Þá kostar nóttin í íbúðinni um 60 þúsund en Kristinn býður uppá afslátt ef um lengri leigu er að ræða. Ef íbúðin er tekin á leigu frá 24. desember til 2. Janúar er verðið 4,739 dollar eða hálf milljón. Til að gæta nákvæmni er upphæðin 505,888 þúsund krónur sem þingmaðurinn fyrrverandi fyrir vestan rukkar.