fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Klór frá sundlaug hefur mögulega borist í Varmá í mörg ár

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Föstudaginn 20. júlí 2018 08:00

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýverið fundust dauðir fiskar í Varmá í Mosfellsbæ og er orsök dauða þeirra er óþekkt. Samkvæmt Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis verður ekki lagt í rannsókn á orsökinni og er hár kostnaður ástæðan fyrir því. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fiskadauði í Varmá vekur athygli.

Í fyrra fundust einnig dauðir fiskar í ánni. Málið var ekki rannsakað en líkur voru taldar á að orsökin hefði verið klórmengun sem barst í Varmá frá sundlaug SÍBS og Reykjalundar. Við framkvæmdir við laugina í júlí það ár áttu sér stað mistök verktaka þegar fráveita sundlaugarinnar var tengd inn á regnvatnsfráveitu og þar með átti klórinn greiða leið í Varmá. Þetta kemur fram í svörum Mosfellsbæjar við fyrirspurn DV. Í sama svari er því haldið fram að bæjaryfirvöld hafi brugðist strax við og fráveita sundlaugarinnar hafi verið tengd við skólpveitukerfi bæjarins.

Annað kemur á daginn þegar ársskýrsla heilbrigðiseftirlitsins er könnuð. Þar kemur í ljós að ekki var enn búið að bæta úr mistökunum í árslok 2017, rúmu hálfu ári eftir að klórmengunin uppgötvaðist. Engar sýnistökur hafa verið gerðar til að mæla klórmengun í Varmá og samkvæmt heimildum DV eru enn fremur dæmi um að sundlaugar og heitir pottar séu enn þá tengdir vitlaust í fráveitukerfi Mosfellsbæjar.

Í samtali við Þorstein Narfason, sem hefur starfað hjá Heilbrigðiseftirliti Mosfellsbæjar í yfir 20 ár, kemur fram að eftirlitið hafi engar skýringar á reiðum höndum um hvað valdi fiskadauðanum sem nýlega kom upp . „Það er mjög líklegt að þetta sé efnamengun, en það er auðvitað rándýrt að komast að því og við erum lítið bættari að vita það því að það er alltaf ákveðinn möguleiki á þessari efnamengun því að regnvatnskerfi bæjarins liggur þarna við Varmá.“

Þorsteinn Narfason

Gífurleg saurgerlamengun í Varmá

Regnvatnskerfi Mosfellsbæjar er ekki hreinsað og því leka öll eiturefni sem fara í það kerfi beint í Varmá. Samkvæmt ársskýrslu heilbrigðiseftirlits frá árinu 2017 kemur einnig fram að mikil saurgerlamengun sé í Varmá samkvæmt sýnatöku eftirlitsins. Umhverfismörk fyrir Varmá eru 14 saurkólígerlar í hverjum 100 millilítrum, en samkvæmt mælingum fundust allt að 1.500 saurkólígerlar í hverjum 100 millilítrum af vatni. Því virðist sem skólp berist í Varmá.

Sé reglugerð umhverfisráðuneytisins um fráveitur og skólp skoðuð er ljóst að magn saurgerla í ánni er langt yfir leyfilegum mörkum. Samkvæmt flokkun vatns í reglugerð um varnir gegn mengun vatns eru vatnsgæði í Varmá í næstneðsta flokknum og uppfylla því ekki skilyrði reglugerðarinnar. Eins og kemur fram framar í greininni voru það mistök verktaka sem vann að sundlaug Reykjalundar sem gerðu það verkum að klór komst í Varmá. Ekki eru það einu mistökin sem verktakar hafa gert þegar kemur að mengun í Varmá því í lok árs 2017 barst skólpmengað vatn í ána vegna mistaka verktaka. Þann 28. maí síðastliðinn flæddi einnig skólp upp um skólpbrunn og beint í Varmá.

Umhverfissvið gagnrýnir mælingar heilbrigðiseftirlitsins

DV hafði samband við Jóhönnu Björgu Hansen, framkvæmdastjóra umhverfissviðs Mosfellsbæjar, til að spyrjast fyrir um mengun í Varmá og hvort bæjaryfirvöld hafi beðið um frekari mælingar. „Nú er það þannig að þeir hjá heilbrigðiseftirlitinu taka ákvarðanir um sitt mengunareftirlit. En athugaðu eitt, þegar þú ert með svona eina punktmælingu sem þeir fara í eftir mengunartilkynningu þá ertu ekki með neinn samanburð, þú ert ekki með mælingar sem eru gerðar reglulega til að bera saman hvað er eðlilegt ástand og hvað er ekki eðlilegt ástand. Það er eitt af því sem við höfum óskað eftir við heilbrigðiseftirlitið að þeir geri reglulegar mælingar en ekki bara eina punktmælingu þegar búið er að tilkynna einhverja mengun. Það er bara ekki nóg að birta bara eina mælingu, það er bara alls ekki nóg.“

 

Jóhanna Björg Hansen
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala