fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Sigla á Jökulsárlóni án leyfis

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 11. júní 2018 15:00

Gúmmíbátur á vegum Arctic Adventures á Jökulsárlóni. Tvö fyrirtæki hafa leyfi til að sigla mótorbátum á lóninu, Jökulsárlón og Ice lagoon. Þar að auki býður eitt fyrirtæki upp á kajaksiglingar og svo eru tveir matarvagnar með leyfi til starfsemi á svæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skjáskot af vef Arctic Adventures frá 7. júní 2018 þar sem boðið er upp á siglingar á lóninu. Samkvæmt öruggum heimildum DV var fyrirtækinu synjað um leyfi til siglinga á lóninu þann 16. maí síðastliðinn.

Ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures siglir með ferðamenn á Jökulsárlóni án þess að vera með leyfi fyrir slíku frá Vatnajökulsþjóðgarði. Starfsmenn og stjórnendur þjóðgarðsins komu af fjöllum þegar DV spurði hvort fyrirtækið væri með leyfi fyrir siglingunum.

Samkvæmt heimildum DV óskaði Arctic Adventures eftir leyfi til að sigla með ferðamenn á lóninu í vetur en fékk ekki svör frá þjóðgarðinum fyrr en í maí. Var þá búið að skipuleggja siglingarnar og jafnvel byrjað að fara með ferðamenn út á lónið á gúmmíbát. DV fékk það staðfest frá tveimur einstaklingum í svæðisráði suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs að í 10. lið fundargerðar svæðisráðsins frá 16. maí hafi Arctic Adventures verið synjað um leyfi til siglinga á lóninu vegna þess að stjórnunar- og verndaráætlun og skipulag fyrir svæðið er ekki tilbúið. Í 15. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð, er fjallað um samninga við þjónustuaðila. Þar segir meðal annars: „Óheimilt er að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Vatnajökulsþjóðgarð.“ Stjórnarmaður í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs sem DV ræddi við taldi að þar sem svar þjóðgarðsins hefði borist seint þá gæti verið að fyrirtækið hafi túlkað það sem samþykki á því að hefja siglingar.

Samkvæmt heimildum DV sótti fyrirtækið um leyfi til siglinga á Jökulsárlóni fyrir nokkrum mánuðum, taldi einn stjórnandi svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs að fyrirtækið hefði að öllum líkindum túlkað þögnina sem samþykki.

Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri á Hornafirði og formaður svæðisráðs suðursvæðis, sagði í samtali við DV að Arctic Adventures væri ekki að sigla á lóninu þann dag. „Ég frétti að þeir hefðu byrjað í vor, sölubíllinn þeirra var kominn, ég veit líka að framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs sendi þeim bréf og benti þeim á að þeir hefðu ekki fengið leyfi og mættu þar af leiðandi ekki sigla á lóninu eða vera með atvinnustarfsemi á svæðinu. Það stendur í lögunum að það megi beita allt að 500 þúsund króna dagsektum. Þetta er í lögunum og bréfið vitnar í lögin reikna ég með,“ sagði Björn Ingi og bætti við að miðað við öll samskiptin í kringum málið þá gæti ekki annað verið en að framkvæmdastjóra Arctic Adventures væri fullkunnugt um að fyrirtækið mætti ekki sigla á lóninu. DV fékk myndir af siglingum Arctic Adventures og sama dag var rætt við Björn Inga. Ekki náðist aftur í Björn Inga við vinnslu fréttarinnar.

Viðkvæmt mál

Erfiðlega gekk að fá svör frá Vatnajökulsþjóðgarði og fannst það greinilega á öllum sem DV ræddi við um málið að það væri mjög viðkvæmt. Til dæmis sagði Hugrún Harpa Reynisdóttir, varaformaður svæðisráðs suðursvæðis, að blaðamaður „næði engu upp úr henni með siglingar Arctic Adventures á Jökulsárlóni.“ Ekki náðist í Þórð Ólafsson, framkvæmdastjóra þjóðgarðsins, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gengum síma og tölvupóst, bæði í síðustu viku og vikunni þar á undan.

Stjórnendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem DV ræddi við sögðu að það skipti ekki máli hvort Arctic Adventures væri með leyfi eða ekki því fyrirtækið væri ekki að sigla á Jökulsárlóni. DV hefur undir höndum myndir frá sama degi og rætt var við stjórnendurna sem sýna ferðamenn á siglingum á lóninu á vegum fyrirtækisins og taka við flotbúningum úr bíl merktum fyrirtækinu.

Sömuleiðis gekk erfiðlega að ná sambandi við einhvern á skrifstofu þjóðgarðsins sem gat svarað hvort fyrirtæki þyrftu leyfi til þess að starfa innan þjóðgarðsins eða ekki, og hvort Arctic Adventures væri með leyfi til siglinga á Jökulsárlóni. Þess má geta að þjóðgarðurinn er með átta mismunandi starfsstöðvar á landinu. Að lokum vísaði Valbjörn Steingrímsson, fjármálastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, á Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðing og stjórnarformann Vatnajökulsþjóðgarðs. Bætti Valbjörn við að það væru líklegast hundruð aðila sem hefðu áhuga á að reka starfsemi innan þjóðgarðslínunnar.

Ármann sagði í samtali við DV að það væri ekki í hans verkahring að stjórna daglegum rekstri á þjóðgarðinum. Hann gat þó staðfest að fyrirtæki þyrftu leyfi frá þjóðgarðinum til að starfa innan hans, gilti það einnig um siglingar á Jökulsárlóni. Varðandi Arctic Adventures sagði Ármann að þeir væru farnir. Eftir að blaðamaður vitnaði í orð starfsmanns á svæðinu sem sagði DV að Arctic Adventures væri enn á svæðinu, sagði Ármann: „Ég hélt að þeir hefðu tekið upp á föstudaginn og farið. Þjóðgarðsvörður sendi mér skeyti á mánudaginn og sagði mér að þeir væru farnir.“

Skellti á

Stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs sagði að fyrirtækið hefði pakkað saman í þarsíðustu viku. Blaðamaður hringdi í kaffihúsið við lónið síðastliðinn fimmtudag og fékk þau svör að bíll Arctic Adventures væri enn við lónið.

Arctic Adventures býður enn upp á siglingar á lóninu, miðað við vef fyrirtækisins. DV ræddi við Jón Þór Gunnarsson, forstjóra Arctic Adventures, í tvígang. Í fyrra skiptið spurði blaðamaður almennt út í leyfi til starfsemi innan þjóðgarðsins. „Sko. Ég veit ekki hvernig ég á að svara þessu því við störfum í þjóðgarðinum í dag á mörgum stöðum. Þannig er það nú bara,“ sagði Jón Þór og bætti við fyrirtækið hefði verið í góðu samstarfi við þjóðgarðinn. Varðandi synjun á leyfi til siglinga á Jökulsárlóni sagði Jón Þór að hann gæti ekki staðfest að fundargerðin vísaði til Arctic Adventures. „Lestu fyrir mig fundargerðina og segðu mér hvar minnst er á Arctic Adventures. Það er hvergi minnst á Arctic Adventures, þannig að við teljum að það hafi aldrei verið fjallað um Arctic Adventures á fundum þjóðgarðsins svo ég viti.“

Jón Þór var mjög hikandi þegar blaðamaður spurði um leyfisveitingar Vatnajökulsþjóðgarðs á atvinnustarfsemi og heyrðist það á honum að hann vandaði orðaval sitt vel. „Það er í gangi vinna innan þjóðgarðsins í að búa til atvinnustefnu og verndarstefnu fyrir þjóðgarðinn. Sú vinna hefur verið í gangi í nokkurn tíma og það liggur ekki fyrir nein niðurstaða í þeirri vinnu.“

Eftir að staðfesting fékkst frá Vatnajökulsþjóðgarði á að Arctic Adventures væri ekki með leyfi til siglinga á Jökulsárlóni hafði blaðamaður aftur samband við Jón Þór, sagði hann eftir að erindið var borið upp: „Heyrðu. Bara gangi þér vel,“ og skellti á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“
Fréttir
Í gær

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum