fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Lekar úr Piana-hjónabandinu: Morðhótanir, búðahnupl og dóp

Fylgjendur Rich Piana ráðast að Söru – Hótaði henni lífláti

Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 9. mars 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menn sem fylgja vaxtarræktarfrömuðinum Rich Piana út yfir dauða og gröf ganga á netinu hart fram gegn fyrrverandi eiginkonu hans, Söru Heimisdóttur. Þeir hafa stofnað til undirskriftasöfnunar undir þeim formerkjum að koma í veg fyrir að Sara fá nokkurn arf úr búi Piana, sem lést í fyrrasumar. Ríflega fimm þúsund manns hafa skrifað undir og er markmiðið, að því er virðist, að henni verði vísað frá Bandaríkjunum.

Fylgjendur Piana hafa í þessari herferð sinni dreift ýmsum gögnum, upptökum og lögregluskýrslum svo dæmi séu nefnd, til þess eins að sverta orðspor Söru, að því er virðist. Hún er sögð hafa stolið fé af Piana, verið háð fíkniefnum og verið handtekin fyrir búðarhnupl. Þeir nefna þó ekki að átrúnaðargoð þeirra virðist hafa sýnt af sér síst skárri hegðun, svo sem að selja stera og hóta að berja og drepa Söru.

Sara og hjónaband hennar og Rich Piana vakti mikla athygli hér á landi. Athyglin beindist þó fyrst og fremst að lúxuslífi þeirra. Þau giftust í Las Vegas árið 2015. Hjónabandið entist ekki lengi og haustið 2016 var greint frá því að þau væru skilin. Rich birti stuttu síðar myndband þar sem hann sagði farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Söru. Hann lést svo í fyrrasumar og sagði Sara þá að þau væru enn hjón í lagalegum skilningi.

Hótar ítrekað að berja hana

Fyrir nokkrum mánuðum var um hálftíma langri upptöku lekið á netið þar sem má heyra Rich Piana ausa fúkyrðum yfir Söru. Augljóst er að Sara stóð að baki upptökunni og má telja líklegt að þetta sé myndbandið sem Sara vitnaði í í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 í nóvember árið 2016. Rich hafði þá nýlega sagt að Sara hefði bara giftst honum til að fá græna kortið. „Ég mun hafa upptökur sem sýna það að hann var oft að öskra á mig og ég grátandi. Þar fær fólk að sjá mikið slæmt,“ sagði Sara í Brennslunni.

Í upptökunni má heyra Rich öskra og æpa á hana meðan hún svarar grátklökk. Hann hótar henni ítrekað að hann muni berja hana til óbóta. Rich sakar hana um að hafa stolið fé af sér til þess að fjármagna kaup á fíkniefnum og því virðist Sara ekki neita. Hann hótar að drepa hana og á einum tímapunkti vill hann fara í slagsmál við hana.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja Sara, þú vilt þetta ekki og vildir það aldrei. Það eina sem ég get gert núna er að berja þig í klessu. Það er það eina sem ég get gert, því þú hlustar ekki á mig. Þess vegna ættir þú bara að hunskast í burtu. Fara aftur til Íslands og úr húsinu mínu. Við getum ekki verið í sambandi því þú gerir ekki það sem þú þarft að gera nema ég berji þig til óbóta. Ég vil ekki þurfa að berja þig því það eru svo margar aðrar fallegar konur þarna úti sem myndu deyja fyrir tækifærið til að vera með mér,“ segir Rich eftir um tuttugu mínútur. Örfáum mínútum síðar heyrast skellir eins og slegið sé í skinn og Rich segir: „Ég mun berja andlitið á þér sundur og saman.“

Handtekin

Fyrrnefndir fylgjendur Rich telja þessa upptöku afhjúpa Söru og fullyrða að núverandi kærasti hennar, Chris nokkur Miller, hafi reynt að selja slúðurmiðlinum TMZ upptökuna. Þeir birta svo lögregluskýrslur og myndir lögreglu, svokallað „mugshot“, af henni. Samkvæmt þessum skjölum var Sara handtekin í mars árið 2017 vegna búðarhnupls í Orlando í Flórída. Sara er sökuð um að hafa stolið skartgripum að verðmæti um átta þúsunda króna.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=zWsUgFiYpWQ&w=560&h=315]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ísraelskar konur hafa gert þetta í 70 ár

Ísraelskar konur hafa gert þetta í 70 ár
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“