Tveir menn voru handjárnaðir og færðir inn í lögreglubíl fyrir utan Íslandsbanka á Suðurlandsbraut rétt í þessu. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu og mættu átta lögregluþjónar á fjórum lögreglubílum á staðinn. Að sögn vitna sem DV ræddi við áttu menn í deilum fyrir utan bankann, en ekki er vitað að svo stöddu um hvað þær deilur snerust um.
Fréttin verður uppfærð.