Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að það vanti í íslenska stjórnmálamenningu að þegar þingmenn séu gripnir við að ljúga eða fari með rangt mál að þeir skammist sín.
Helgi Hrafn Gunnarson var gestur hjá Stóru málunum og ræddi hann meðal annars umræðuna sem Jón Þór Þorvaldsson, þingmaður Miðflokksins, hóf á Alþingi og í fjölmiðlum landsins varðandi yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um réttindi innflytjenda. Helgi Hrafn segir að umræðan varðandi yfirlýsinguna sé að mestu leyti byggð á rangfærslum og eingöngu gerð til að reyna gera yfirlýsinguna tortryggilega.
Í þættinum var einnig rætt Klaustursmálið og hvernig þingmenn Miðflokksins brugðust við, meðal annars að draga einstaklinginn sem tók upp samtal þeirra fyrir dómstóla. „Það eru nokkrar tegundir af óheiðarleika sem tilheyra bara standard vopnabúri í pólitík og þykir ekki bara í lagi að nota, heldur líka svolítið töff að nota og eitt af því er útúrsnúningur og afvegaleiðing.“ Segir Helgi Hrafn.
Hér að neðan má sjá viðtalið við Helga Hrafn í heild sinni.