fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Dómkirkjuprestur skilur ekkert í Miðflokksmönnum og vísar á „hið alsjáandi auga drottins“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. desember 2018 12:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur skilur ekki hvers vegna Miðflokksmenn vilji leiða hann sem vitni vegna mögulegrar málsóknar gegn Báru Halldórsdóttur. Hann segist ekkert geta upplýst um Klausturmálið þar sem engar eftirlitsmyndavélar á Dómkirkjunni.

Þetta kemur fram á RÚV. Lögmaður Miðflokksmanna, Reimar Pétursson, lýsti því fyrir dómi í gær að flokksmenn efuðust um að Bára hafi verið ein á ferð. Því sækist þeir eftir að komast í myndavélaupptökur á svæðinu.

Sveinn segist ekki geta aðstoðar þingmenn. „Mín afstaða er nú sú að ég held að það hafi ekkert upp á sig. Við erum ekki með neinar eftirlitsmyndavélar til að leita í. Eini eftirlitsbúnaðurinn sem eitthvað gæti tengst Dómkirkjunni væri hið alsjáandi auga drottins og hans alþunna eyra,“ segir Sveinn.

Hann segist tilbúinn að mæta fyrir dóm en segir þó að það yrði tímaeyðsla. Sveinn bætir því við að svo virðist sem enginn hafi kannað þetta, hvort eftirlitsmyndavélaupptökur væru til á annað borð. „En ég skil ekki hvaðan þetta kemur,“ segir Sveinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi