fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Miðflokkurinn segir alltaf hægt að ná í Sigmund – Bára sögð „manneskja sem gerðist sek um eða tók á sig sök um hlerun“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 12. desember 2018 16:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í yfirlýsingu sem Miðflokkurinn birtir á Facebook segir að skýrslutaka yfir Báru Halldórsdóttur sé liður í „nauðsynlegri gagnaöflun“. Þar er enn fremur sagt að enn hafi ekki verið farið fram á bætur. „Vegna umræðu í fjölmiðlum er rétt að taka eftirfarandi fram. Skýrslutaka yfir manneskju sem gerðist sek um eða tók á sig sök um hlerun er einungis einn liður í nauðsynlegri gagnaöflun. Við reiknum fastlega með því að ýmislegt eigi eftir að koma fram. Rétt einstaklinga til friðhelgi ber alltaf að virða og er það okkar helsti útgangspunktur. Ekki er búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá neinum,“ segir í yfirlýsingu.

Þar er því enn fremur vísað á bug að ekki sé hægt að ná í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins. „Varðandi þær fullyrðingar sem komið hafa fram í fjölmiðlum um að ekki hafi verið hægt að ná í formann okkar er sannleikurinn sá að alltaf er hægt að ná í Sigmund Davíð af starfsmönnum Alþingis eða koma boðum til hans. Svar við fundarboði var tilbúið en kl 17.00 var fundurinn afboðaður. Engin tímamörk voru höfð í fundarboði. Það var vitað að hvert svo sem svarið hefði orðið hefði það lekið í fjölmiðla nær samstundis,“ segir í yfirlýsingu.

Hann segir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé notuð í pólitískum tilgangi en nefndin átti að fara yfir fullyrðingu Gunnars Braga Sveinssonar um að hann ætti inni sendiherrastöðu. „Það er líka rétt að benda á að þeir sem voru boðaðir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hafa enga skyldu til að mæta. Það er afar fátítt að þingnefndir séu notaðar í jafn augljósum pólitískum tilgangi og átti að gera. Slíkt á ekki að viðgangast,“ segir í yfirlýsingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“