fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Omar og 16 ára sonur hans eru á götunni – „Ég hef búið hér í 27 ár, ég er enginn hælisleitandi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. nóvember 2018 10:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Omar og 16 ára sonur hans eru á götunni og vita ekki hvar þeir munu sofa í nótt. Omar, sem er frá Marokkó, hefur búið á Íslandi í 27 ár og sonur hans er fæddur á Íslandi. Omar, sem heitir fullu nafni Omar Abenbi Mariachi, hefur greitt skatta og skyldur á Íslandi allan sinn tíma hér og er enginn óreglumaður. Hann er því skiljanlega ósáttur við þetta hlutskipti.

Omar kom til Íslands árið 1990 og starfaði við sjómennsku til 1993 og við fiskvinnslu fram til aldamóta. Vinnuslys sem hann lenti í árið 1994 leiddi til þess að hann varð óvinnufær um aldamótin og hefur verið öryrki síðan. Tekjur Omars úr lífeyrissjóði og almannatryggingum eru samtals um 240.000 krónur á mánuði.

Þann 25. október þurftu feðgarnir að yfirgefa leiguhúsnæði sem þeir hafa búið í undanfarið vegna þess að eigandinn vildi nota það til annars. Þá hófust vandræði Omars. Velferðarferðarsvið Kópavogsbæjar greiddi undir þá feðga nokkrar nætur á gistiheimili þar sem hver nótt kostaði 12.000 krónur. Skömmu eftir mánaðamót tilkynnti velferðarsvið Omar hins vegar að ekki yrði greitt frekar undir þá feðga. „Komið ykkur út, sagði starfskonan við mig,“ segir Omar og þótti honum það að vonum kaldar kveðjur.

Segir að félagsmálayfirvöld vilji stía feðgunum í sundur

„Ég hef búið hér í 27 ár, ég er enginn hælisleitandi. Ég hef greitt hér skatta og skyldur allan minn tíma á Íslandi,“ segir Omar og er afar ósáttur við stöðuna. Hann telur sig eiga rétt á leiguhúsnæði og neitar að líta á sig sem ölmusumann. En það gengur afar illa að finna laust húsnæði. Honum bauðst lítil herbergi á 140.000 krónur þar sem aðgangur að salerni var langt frá herberginu. Að öðru leyti hefur hann alls staðar komið að lokuðum dyrum.

Omar segist hafa skynjað vilja til að stía feðgunum sundur af hálfu Velferðarsviðs Kópavogsbæjar. „Þau sögðu að þau gætu komið syni mínum í húsnæði en mér ekki. Þau vilja aðskilja okkur. Það kemur ekki til greina. Á fundum okkar með starfsfólkinu reyndi það að fá að tala einslega við hann en ég þvertók fyrir það. Hann er bara 16 ára og það á ekki að taka viðtöl við hann án þess að foreldri sé viðstatt,“ segir Omar.

„Starfskona spurði mig líka einu sinni hvers vegna ég sendi drenginn ekki til Marokkó og þá varð ég reiður. Drengurinn er fæddur hér, hann er Íslendingur!“ Þess má geta að móðir drengsins býr í Marokkó ásamt systur hans.

Velferðarsvið: Samband haft við barnavernd ef börn eiga í engin hús að venda

DV hafði samband við Velferðarsvið Kópavogs sem hefur með mál Omars að gera. Vel þekkt er að félagsþjónustuaðilar svari ekki fyrirspurnum um málefni einstaklinga en DV sendi nokkrar almennar spurningar um meðferð mála af þessu tagi sem mál Omars vekur. Svar Velferðarsviðs er svohljóðandi:

„Einstaklingar og fjölskyldur sem missa húsnæði og leita til velferðarsviðs fá upplýsingar og ráðgjöf um hvar er helst að finna húsnæði á leigumarkaði eins og t.d. hjá leigufélögum, eftir auglýsingum eða á samfélagsmiðlum og jafnframt er þeim bent á að nýta sitt félagslega net í húsnæðisleitinni.

Ef viðkomandi er á biðlista eftir félagslegri leiguíbúð er hann upplýstur um stöðu umsóknar varðandi stigafjölda og biðtíma á biðlista og hvers er að vænta varðandi úthlutun. Meðal biðtími eftir félagslegri leiguíbúð er þrjú ár. Farið er yfir skattskyldar- og óskattskyldar tekjur og eignastöðu í þeim tilgangi að kanna hvort til staðar séu ósótt réttindi varðandi greiðslur bóta eða launa og er viðkomandi boðin aðstoð við að sækja ósóttan rétt. Þá kann að vera að viðkomandi eigi rétt á fjárhagsaðstoð skv. reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð, til framfærslu eða skv. sérstökum heimildum. Í síðarnefnda tilvikinu er vísað til heimildar að veita vaxtalaust lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu allt að kr. 500.000,- ef fyrir liggur þinglýstur húsaleigusamningur. Þá er viðkomandi upplýstur um fjárhæðir og leiðbeint með hvar sótt er um húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning ef fyrir liggur þinglýstur leigusamningur.

Velferðarsvið veitir einstaklingum og fjölskyldum sem missa húsnæði og eiga í engin hús að venda styrk til að greiða dvöl á gistiheimili í 12 nætur á meðan þeir sinna markvissri húsnæðisleit. Styrkur er kr. 5.000,- á dag og er að hámarki kr. 60.000,-. Gistikostnað umfram þá fjárhæð greiðir viðkomandi sjálfur.

Viðkomandi er upplýstur um að  hluti af hans ráðstöfunarfé verði að fara í að greiða fyrir gistingu eða húsnæði, óháð því hvort hann gistir hjá ættingjum eða vinum, á gistiheimili, leigi svart eða með þinglýstan leigusamning.

Þegar um er ræða mál þar sem barn eða börn eru í fjölskyldu sem á í engin hús að venda er send tilkynning til barnaverndar.“

 

Mótmælastaða í miðbænum

Omar og sonur hans voru með mótmælastöðu í miðbæ Reykjavíkur á þriðjudag til að vekja athygli á máli sínu.

Omar hefur leitað ásjár í samfélögum múslima á Íslandi þar sem reynt er að greiða götu hans en hann getur ekki fengið að sofa í moskunum. Í augnablikinu er hann alveg bjargarlaus. Omar er enginn óreglumaður, hreinn og snyrtilega klæddur, kurteis og vingjarnlegur. Hann hefur fastar en lágar tekjur og leitar að litlu húsnæði sem hann gæti búið í með syni sínum, á viðráðanlegum kjörum.

Þeir sem gætu mögulega greitt götu Omars varðandi húsnæðisleit eru beðnir um að hringja í Omar í símanúmer hans, 788-5329.

 

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar