„Ég hefði átt að fara frá honum fyrr, en málið er að ég vissi að þetta myndi gerast ef ég færi frá honum,“ ritar 19 ára gömul stúlka í átakanlegri færslu á facebooksíðu eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri líkamsárás af hálfu fyrrum kærasta síns. Með færslunni fylgir ljósmynd sem sýnir áverka hennar.
Hin 19 ára gamla Alyssa Ruffalokemur frá borginni Yukon í Oklahoma fylki. Tæplega 130 þúsund manns hafa deilt færslu hennar eftir að hún birtist á facebook 30. október síðastliðinn.
Alyssa ræðir einnig við News 4 sjónvarpsstöðina um málið. Hún var í sambandi með fyrrum unnusta sínum í sjö mánuði og segist hafa orðið fyrir miklu andlegu og líkamlegu ofbeldi á meðan á því stóð.
Fyrir ykkur sem voruð að velta því fyrir ykkur hvað hefði komið fyrir mig:
Fyrrverandi kærastinn minn kom heim til mín og þegar ég sagði honum að ég vildi ekki hafa hann í mínu lífi þá barði hann mig til óbóta. Hann dró mig niður götuna á hárinu, sparkaði margsinnis í höfuðið á mér og henti mér síðan inn í bíl.
Hann sagðist ætla að drepa mig og sagðist vera búinn að horfa á nóg af nóg af sjónvarpsþáttum um morð til að vita hvernig hann gæti komist upp með það.
Ég náði að stökkva út úr bílnum, sem var á 80 kílómetra hraða, og bjarga sjálfri mér. Höfuðið á mér skall á gangstéttarbrún, sem olli heilablæðingu og ég endaði í lífshættulegu ástandi.
Ég fer í aðgerð á morgun út af brotnum kjálka, nefi og öðrum beinum í andlitinu.
Ég hefði átt að fara frá honum fyrr, en málið er að ég vissi að þetta myndi gerast ef ég færi frá honum. Hann er ennþá á flótta. Hann heitir Adrian Vargas.“
Í lokin hvetur Alyssa fólk til að deila færslunni sem víðast þannig að nafn ofbeldismannsins verði á allra vörum.
„Hann er hættulegur og hann gengur ennþá laus.“