fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Svo stressaður á steypudælunni að hann reykti 35 pakka af sígarettum – „Eftir fimm ár í karamellunni ákvað ég að söðla um“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 17. október 2018 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er mjög ánægður með starf mitt hjá Steypustöðinni, mikil fjölbreytni og ég hef himininn fyrir ofan mig. Ég þarf helst að vera utandyra annars finnst mér ég ekki vera frjáls maður.“ Þetta segir Mariusz Jurkowski, dælumaður á steypubíl.

Mariusz er ein þeirra sem segja sögu sína í tengslum við verkefnið Fólkið í Eflingu. Hann segist hafa unnið baki brotnu þegar hann kom fyrst til Íslands. „Ég kom til Íslands rétt fyrir hrun og réði mig í sælgætisverksmiðju þar sem ég starfaði í fimm ár. Verksmiðjustarfið var mjög einhæf, ég hrærði karamellu allan liðlangan daginn, sveittur í einangrunarbúning sem átti að vernda mig fyrir karamellunni sem slettist á mig. Við hjónin unnum bæði í verksmiðjunni í dagvinnu og þrifum fyrir ISS á kvöldin. Þá var farið beint úr verksmiðjunni í leikskóla sem við þrifum og þaðan í grunnskóla sem var líka þrifin fram að síðustu strætóferð sem við tókum heim. Þegar við komum heim áttum við eftir að elda og sinna okkur og stundum var ekki sofið meira en tvo þrjá tíma á nóttu og þá vorum við aftur mætt í verksmiðjuna að morgni. Svona leið eitt ár og við vorum orðin eins og uppvakningar,“ segir Mariusz.

Hann segist að lokum hætt að vinna í verksmiðjunni. „Við hættum hjá ISS en á þessum tíma eignuðumst við tvær dætur sem eru sex og átta ár í dag. Konan mín fór í barneignarfrí en ég hélt áfram í verksmiðjunni, ég þorði ekki að skipta um starf á meðan fjölskyldan stækkaði. Ég lagði mig fram og bað um launahækkun en því var hafnað í tvígang og eftir fimm ár í karamellunni ákvað ég að söðla um og sótti um starf á bifvélaverkstæði,“ segir Mariusz.

Hann segist hafa lært á Youtube að sjóða saman saman púströr og hljóðkúta. „Ég er ekki lærður bifvélavirki, ég lærði kokkinn í Póllandi og er bara áhugamaður um bíla. En nóttina áður en ég réði mig á verkstæðið lærði ég af Youtube myndbandi að sjóða saman púströr og hljóðkúta og fékk starfið. Þetta gekk ágætlega á verkstæðinu og ég var þar í tvö ár en ég þráði að vera úti og þegar ég sá auglýst eftir manni á steypubíl þá sló ég til og sótti um,“ segir Mariusz.

Hann segist hafa verið gífurlega stressaður fyrir það starf. „Ég hef verið hérna í tvö ár og uni mér vel, en ég man hvað ég var stressaður í byrjun, ég reykti 35 pakka af sígarettum þennan mánuð sem ég var að læra á steypudæluna. Skrýtið að hugsa til þess af því núna, gæti ég dælt með lokuð augun. Konan mín er ennþá að vinna í sælgætisverksmiðjunni, hún sækir börnin í leikskólann og skólann eftir vinnu,“ segir Mariusz.

Hann segist vinur leigusala síns: „Ég hef verið heppin í leigumálum, leigt hjá sama manninum frá byrjun og borgað lága leigu. Leigusalinn minn, íslenskur eldri borgari hefur með tímanum orðið fjölskylduvinur okkar, hann hefur meira að segja keyrt til Póllands og heimsótt foreldra mína.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis